Blindrasýn
Blindrasýn er fréttablað Blindrafélagsins. Blaðið er að jafnaði gefið út tvisvar á ári og hefur verið dreift með Morgunblaðinu eða Fréttablaðinu. Blindrasýn er ætlað að vekja athygli almennings á málefnum blindra og sjónskertra. Þar birtast m.a. fræðslugreinar um ýmislegt sem tengist málefninu og viðtöl við ýmsa félagsmenn Blindrafélagsins sem hafa frá einhverju skemmtilegu að segja.
Blindrasýn er einnig fjáröflunarleið fyrir Blindrafélagið þar sem stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar geta keypt auglýsingar og styrktarlínur.
Í undirflokkunum á þessari síðu er hægt að nálgast útgáfur Blindrasýnar eftir árum á pdf og word formi og einnig sem hljóðskrár.
