Fara í leit

Blindrasýn

Blindrasýn var fréttablað Blindrafélagsins fram til ársins 2008. Blaðið var að jafnaði gefið út tvisvar á ári og var dreift með Morgunblaðinu eða Fréttablaðinu. Blindrasýn var ætlað að vekja athygli almennings á málefnum blindra og sjónskertra. Þar birtust m.a. fræðslugreinar um ýmislegt sem tengdust málefninu og viðtöl við ýmsa félagsmenn Blindrafélagsins sem höfðu frá einhverju skemmtilegu að segja.

Blindrasýn var einnig fjáröflunarleið fyrir Blindrafélagið þar sem stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar gátu keypt auglýsingar og styrktarlínur.

Í undirflokkunum á þessari síðu er hægt að nálgast útgáfur Blindrasýnar frá árum 2007 og 2008 á pdf og word formi og einnig sem hljóðskrár.