Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi
Blindrafélagið
Foreldradeild Blindrafélagsins

Foreldradeild Blindrafélagsins

Foreldradeild blindra og sjónskertra barna er vettvangur foreldra og barna til að kynnast hvort öðru og byggja upp félagstengsl. Við leitumst eftir því að veita þeim sem eru uppalendur blindra og/eða sjónskertra barna stuðning frá foreldrum til foreldris.

Foreldrar geta sín á milli skipst á gríðarlega miklum upplýsingum. Þannig stefnum við að því að slíta foreldra blindra og sjónskertra barna úr þeirri einangrun sem margir finna fyrir eftir að greining fæst.

Það eru fjölmargar spurningar sem koma upp varðandi uppeldi blindra og sjónskertra barna og iðulega þarf að glíma við önnur vandamál og úrlausnarefni en flestir aðrir foreldrar fást við. Til að einangrast ekki er besta leiðin að koma sér upp öflugu tengslaneti fólks í svipuðum aðstæðum.

Heimasíða foreldradeildar

Foreldradeildin heldur úti eigin heimasíðu www.blindborn.is  Þar er að finna ýmsar upplýsingar um starf deildarinnar og annað efni er viðkemur uppeldi blindra og sjónskertra barna. 

 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica