Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi
Blindrafélagið

Kvennadeild

Kvennadeild Blindrafélagsins

Kvennadeild Blindrafélagsins er vettvangur blindra og sjónskertra kvenna á öllum aldri til að koma saman, miðla af reynslu sinni, styðja hver aðra og skemmta sér saman.

Kvennadeildarfundir eru haldnir að jafnaði einu sinni í mánuði.

Helstu markmið deildarinnar eru eftirfarandi: 

  •  Að hvetja konur til að taka virkari þátt í starfi Blindrafélagsins. 
  •  Að vinna að málefnum blindra og sjónskertra kvenna.
  •  Að bjóða upp á námskeið og fyrirlestra fyrir félagskonur.
  •  Að vera stuðningshópur.
  •  Að auka áhuga á og kynna jafnréttismál.
  •  Að taka þátt í norrænu og alþjóðlegu samstarfi.

Stjórn Kvennadeildar

 

Kristrún Skúladóttir formaður

Ólöf Valdimarsdóttir gjaldkeri

Arnheiður Björnsdóttir ritari

Jolee Margaret Crane meðstjórnandi

Rósa Ragnarsdóttir meðstjórnandi





Þetta vefsvæði byggir á Eplica