Fara í leit

Retina Ísland (RP-deild)

Reglugerð Retina Ísland - Retina deildar Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi

  1. Nafn deildarinnar er Retina Ísland  - Retina deild Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi. Á ensku Retina Iceland.
  2. Tilgangur með starfi Retina Ísland er að:
    • Styðja við rannsóknarstarf sem skilað getur meðferðum við ólæknandi arfgengum sjónhimnusjúkdómum, svo sem Retinitis Pigmentosa, Retina Disorder, Usher Syndrome og AMD.
    • Fræða samfélagið og félaga deildarinnar um eðli þessara augnsjúkdóma og þær rannsóknir sem hæst bera á hverjum tíma,
    • Taka þátt í alþjóðlegu starfi sem samræmist markmiðum Retina Ísland
    • Vera vettvangur félagsstarfs og jafningjastuðnings á milli þeirra sem aðild eiga að deildinni.
  3. Félagar í Retina Ísland geta orðið allir sem áhuga hafa á að styðja við markmið deildarinnar. Aðild að Retina Ísland felur ekki í sér sjálfkrafa aðild að Blindrafélaginu.
  4. Innan Retina Ísland starfar sérstakt vísindaráð, skipað vísindamönnum á sviðum sem tengjast rannsóknum á arfgengnum sjónhimnusjúkdómum. Vísindaráðið skal aldrei vera skipað færri en tveimur vísindamönnum. Vísindaráð Retina Ísland er einnig vísindaráð Blindrafélagsins. Hlutverk vísindaráðs er að vera forustu og félagsmönnum Retina Íslands til ráðgjafar og upplýinga í málum er snúa  að rannsóknum og meðferðum við arfgengum sjónhimnusjúkdómum. Einnig að vera fulltrúi Retina International á alþjóðavettvangi sé þess óskað.
  5. Aðalfundi deildarinnar skal halda að vori og skal aðalfundi deildarinnar vera lokið fyrir aðalfund Blindrafélagsins ár hvert.
  6. Á aðalfundi skal fjalla um starf deildarinnar á liðnu ári og kjósa til stjórnar. Stjórn deildarinnar skipa 4 einstaklingar auk formanns sem kosinn  er sérstakri kosningu..Stjórnin skiptir með sér verkum.
  7. Hafi ekki verið boðaður aðalfundur áður en Blindrafélagið heldur sinn aðalfund er stjórn Blindrafélagsins heimilt að boða til aðalfundar deildarinnar.
  8. Fjárhagur Retina Íslands er sjálfstæður að því marki sem tekur til ráðstöfunar á fjárframlagi Blindrafélagsins og þess sjálfsaflafé sem Retina Ísland  kann að afla.
  9. Retina ísland getur ekki efnt til neinna fjarhagslegra skuldbindinga í nafni Blindrafélagsins án þess að fyrir liggi heimild frá stjórn Blindrafélagsins.

 

Constitution of Retina Iceland – Retina group of Blindrafelagid, Icelandic organization of the visually impaired.

 

  1. The name is Retina Iceland – Retina group of Blindrafelagid, Icelandic organization of the visually impaired.
  2. The purpose of Retina Iceland is to:
  • Support research that could lead to a cure for Retinitis Pigmentosa (RP), Macular Degeneration, Usher Syndrome and Allied Retinal Dystrophies.
  • Educate the community on nature of these eye deceases and what researches are being carried out to seek cure.
  • Participate in international work that is in harmony with the purpose of Retina Iceland.
  • Be a supportive and socializing venue for patients and their families.

 

  1. Membership of Retina Iceland is open to all that are interested and want to support the cause. Membership of Retina Iceland does not automatically mean membership of BIOVI.

 

  1. Scientific Medical and Advisory board (SMAB) is operating within Retina International. Scientists serving on the board shall be from the field of ophthalmology or sciences that are relevant to researches on RP, AMD, RD etc. On the SMAB shall never be fewer than 2 scientists. The purpose of the SMAB is be a consulting body to Retina Iceland and its members in research matters concerning Retinitis Pigmentosa (RP), Macular Degeneration, Usher Syndrome and Allied Retinal Dystrophies. Also to represent Retina International on international level if required.

 

  1. Retina Iceland´s GA shall take place at least one month before BIOVI GA every year.

 

  1. On GA agenda shall be reports on past years work and election of the board, The board shall consist of 4 persons in addition to chairman, chairman shall be elected separately. The board is responsible for allocating members to different responsibilities.

 

  1. If the board of Retina Iceland does not schedule and call for GA before the BIOVI GA  the board of BIOVI is entitled to do so.

 

  1.  Retina Iceland is financially independent in allocating the financial support it receives from BIOVI and also in allocating money raised in independent found raising projects.

 

  1. Retina Iceland is not allowed to make BIOVI financially responsible for anything unless the board of BIOVI has agreed on it in advance.  

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica