Fara í leit

Ungblind

Ungblind er vettvangur unga fólksins í Blindrafélaginu

 

Meginhlutverk Ungblind er fræðsla, félagsstarf, skemmtanir og jafningjastuðningur fyrir félagsmenn en Ungblind er ætluð blindum og sjónskertum einstaklingum á aldrinu 18 - 35 ára.

Unggblind stendur fyrir margskonar uppákomum, svo sem stuttum ferðum, veitingahúsaferðum, innanhússskemmtunum og fræðslu af ýmsu tagi.

Árlega er boðið upp á ferðir til Norðurlandanna í sumarbúðir blindra og sjónskertra ungmenna.

Á skrifstofu Blindrafélagsins starfar sérstakur æskulýðsfulltrúi sem heldur utan um starf Ungblindar. Starfinu gegnir Þorkell J Steindal.

Formaður Ungblindar er Eyþór Þrastarson.

 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica