Lög Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi
Samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi
1. Kafli Nafn og tilgangur.
1. gr.
Nafn félagsins er Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Enskt heiti félagsins er: Blindrafelagid, Icelandic Organization of the visually impaired (BIOVI).
2. gr.Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, er samfélagslegt afl – mannréttindasamtök - sem berst fyrir að blindir og sjónskertir einstaklingar geti lifað sjálfstæðu, innihaldsríku og ábyrgu lífi, og að þeim sé tryggður jafn réttur og jöfn tækifæri til ábyrgrar, virkrar og viðurkenndrar þátttöku í öllum þáttum samfélagsins.
3. gr.
Hlutverk Blindrafélagsins erað stuðla að því að blindir og sjónskertir einstaklingar geti lifað sjálfstæðu og innihaldsríku lífi og séu ábyrgir og virkir samfélagsþegnar. Stuðningur til sjálfstæðis eru einkunnarorð félagsins.
Stjórn félagsins getur heimilað að innan þess starfi deildir er sinni félagsstarfi og hagsmunamálum einstakra hópa félagsmanna. Deildirnar skulu starfa samkvæmt sérstakri reglugerð sem staðfest hefur verið af stjórn Blindrafélagsins.
Félagið hafi meðal annars eftirfarandi að leiðarljósi;
- að gæta þess að blindir og sjónskertir njóti þeirra lífsgæða sem almennt eru talin eðlileg.
- að stuðla að því að blindir og sjónskertir geti aflað sér menntunar og hafi atvinnu
- að stuðla að því að blint og sjónskert fólk hafi aðgang að upplýsingum á því formi sem hentar
- að efla samskipti blindra og sjónskertra með félagslífi og öflugu trúnaðarmannakerfi
- að þrýsta á að opinberir aðilar og aðrir veiti blindum og sjónskertum þá þjónustu og endurhæfingu sem þeir þurfa á að halda og hafa aðhald á þá þjónustu sem veitt er
- að hafa samstarf við erlend systursamtök og hagsmunasamtök fatlaðra hér á landi
- að stuðla að rannsóknum í þágu blindra og sjónskertra
- að stuðla að útgáfu og kynningu þannig að málefni blindra og sjónskertra séu öllum aðgengileg.
2. kafli Félagsaðild.
4. gr.
Félagsmaður getur hver sá orðið sem hefur sjón sem nemur 6/18 eða minna, eða hefur sjóngalla eða augnsjúkdóm sem jafna má við greinda sjónskerðingu að mati augnlæknis og greiðir árstillag til félagsins í samræmi við ákvörðun aðalfundar.
Forráðamenn ólögráða barna sem uppfylla skilyrði til félagsaðildar skv. 1. mgr. fara með félagsleg réttindi og skyldur barnanna. Sama á við um þá félagsmenn sem sökum fjölfötlunar eða af öðrum ástæðum geta ekki sinnt félagslegum skyldum sínum eða gætt hagsmuna sinna.
5. gr.Aðrir en að ofan greinir geta gerst bakhjarlar Blindrafélagsins og hafa þeir málfrelsi og tillögurétt á félagsfundum. Bakhjarlar félagsins eru kjörgengir til trúnaðarstarfa á vegum félagsins og hafa þá óskoraðan atkvæðisrétt á fundum stjórna og nefnda sem þeir eru kjörnir til setu í.
3. Kafli Félagsfundir
6. gr.
Almennan félagsfund skal stjórn boða með minnst viku fyrirvara með dagskrá á miðlum félagsins eða á annan opinberan hátt.
Boðað skal til almenns félagsfundar ef minnst 10 aðalfélagar óska þess og senda stjórn félagsins um það skriflega beiðni. Skulu þeir tilgreina ástæðu þess að óskað er eftir að félagsfundur verði boðaður. Stjórn skal boða til og halda fundinn innan hálfs mánaðar frá því að ósk berst.
7. gr.
Atkvæðisrétt á fundum félagsins hafi allir félagsmenn skv. 4. gr. laganna.
4. Kafli Aðalfundur
8. gr.
Aðalfund skal halda eigi síðar en í maílok ár hvert og skal hann boðaður með minnst fjögurra vikna fyrirvara. Framboðum til stjórnar félagsins og tillögum að lagabreytingum skal skila til skrifstofu félagsins eigi síðar en þremur vikum fyrir boðaðan aðalfund.
Berist fleiri framboð til stjórnar en kjósa á um hverju sinni skal stjórn félagsins undirbúa kosningu og birta lista yfir þá sem í kjöri eru. Berist ekki nægilegur fjöldi framboða skal kjörnefndin, svo fljótt sem verða má, hlutast til um að afla þeirra fyrir aðalfund.
Stjórn skal setja nánari reglur um framkvæmd kosninga og utankjörfundaratkvæðagreiðslu og skulu þær birtar félagsmönnum.
9. gr.
Fastir dagskrárliðir aðalfundar skulu vera:
a. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á síðastliðnu starfsári.
b. Afgreiddir reikningar félagsins og sjálfstæðra rekstrareininga þess fyrir næsta ár á undan.
c. Ákveðið árstillag félagsmanna og gjalddagi þess, svo og tillag ævifélaga.
d. Kosning formanns félagsins til tveggja ára.
e. Kosning tveggja stjórnarmanna til tveggja ára, samanber 10.gr.
f. Kosning tveggja varamanna til tveggja ára.
g. Kosning tveggja skoðunarmanna og jafn margra varamanna til tveggja ára.
h. Kosning í kjörnefnd.
i. Lagabreytingar.
j. Aðalfundur ákveði laun stjórnarmanna.
k. Önnur mál.
5. Kafli Stjórn Blindrafélagsins
10. gr.
Stjórn Blindrafélagsins skal kosin á aðalfundi. Hana skipa fimm aðalmenn ásamt fjórum varamönnum. Formaður skal kjörinn sérstaklega til tveggja ára. Stjórnin velur úr hópi sínum varaformann, féhirði, ritara og meðstjórnanda.
Aðrir stjórnarmenn og varamenn skulu kosnir til tveggja ára í senn þannig að árlega skulu kosnir tveir aðalmenn og tveir varamenn og jafnmargir gangi úr stjórn. Varamenn taka sæti aðalmanna er kosnir voru til sama tíma í forföllum þeirra, fyrst sá er fleiri atkvæði hefur að baki sér. Séu varamenn, er kosnir voru til sama tíma, ekki tiltækir skal varamaður, sem kjörinn hefur verið á öðrum aðalfundi, taka sæti stjórnarmanns eftir sömu reglu um atkvæðamagn. Falli stjórnarmaður frá eða gangi úr stjórn félagsins tekur varamaður sæti hans á sama hátt og situr út kjörtíma þess stjórnarmanns.
Félagsmenn og bakhjarlar Blindrafélagsins eru kjörgengir til stjórnar. Þó mega ekki fleiri en tveir úr hópi bakhjarla sitja í stjórn félagsins hverju sinni
11. gr
Stjórn Blindrafélagsins fer með málefni félagsins á milli aðalfunda. Stjórnin framkvæmir ákvarðanir aðalfunda og félagsfunda.
Stjórnarfundur er lögmætur hafi allir stjórnarmenn verið sannanlega boðaðir, og meirihluti þeirra er viðstaddur.
Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum.
Stjórnarformaður boðar til stjórnarfunda og stýrir þeim og kemur fram fyrir hönd stjórnar. Hann skal vera í fyrirsvari fyrir félagið á opinberum vettvangi.
12. gr.
Stjórnin boðar til aðalfundar og undirbýr hann, leggur fyrir fundinn endurskoðaða reikninga síðasta árs, hefur umsjón með eignum Blindrafélagsins og gætir hagsmuna þess í öllum greinum.
13. gr.
Stjórn Blindrafélagsins er heimilt að fela einstaklingum og nefndum, sem hún kýs, afmörkuð verkefni fyrir félagið á milli stjórnarfunda.
Gerðarbók skal halda yfir fundi stjórnar og skulu fundargerðir staðfestar af öllum viðstöddum stjórnarmönnum og framkvæmdastjóra.
14. gr.
Stjórnin ræður starfsmenn félagsins og hefur umsjón með daglegum rekstri og fjármálum þess. Gerðir starfsmanna samkvæmt starfssamningi eru bindandi fyrir félagið eins og þær væru gerðar af stjórninni.
Framkvæmdastjóri félagsins annast daglegan rekstur í umboði stjórnar.
Stjórn félagsins ber ábyrgð á störfum sínum gagnvart almennum félagsfundi, stjórnendur einn fyrir alla og allir fyrir einn, nema sá sem hefur látið bóka ágreiningsatriði í gerðarbók stjórnar.
Starfsamningar yfirmanna hinna einstöku rekstrarþátta félagsins skulu lagðir fyrir stjórn til samþykktar.
6. Kafli Endurskoðun
15. gr.
Reikningsleg endurskoðun skal framkvæmd af löggiltum endurskoðanda. Reikningsár félagsins er almanaksárið.
Skoðunarmenn athuga hag og rekstur félagsins og sjálfstæðra rekstrarþátta þess.
7. kafli Fjármál Blindrafélagsins.
16. gr.
Blindrafélagið greiðir
-
Kostnað við rekstur félagsins.
-
Ferðakostnað og uppihald stjórnarmanna á stjórnarfundum.
-
Kostnað vegna fundarsóknar fulltrúa félagsins í stjórnum og nefndum samtaka, stofnana og fyrirtækja sem félagið á aðild að ásamt kostnaði vegna ferða fulltrúa félagsins á ráðstefnur og fundi.
-
Stjórn setur reglur er varðar ferðir og dvalarkostnað vegna ferða fulltrúa félagsins á ráðstefnur og fundi erlendis sem stjórn hefur samþykkt þátttöku í.
17. gr.
Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins fyrir stjórn eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund. Skulu reikningar síðan liggja frammi á skrifstofu félagsins, með venjulegu letri, punktaletri og á hljóðformi eigi síðar en viku fyrir boðaðan aðalfund.
18. gr.
Ef um kaup, sölu eða veðsetningu fasteigna er að ræða, þá skal stjórnin kalla til varastjórn. Hafa varamenn þá óskoraðan atkvæðisrétt.
8. Kafli Heiðursmerki
19. gr.
"Gulllampinn" er æðsta heiðursmerki Blindrafélagsins.
Merkið er veitt þeim einstaklingum sem hafa skarað fram úr vegna starfa sinna í þágu blindra og sjónskertra. Gulllampann má því aðeins veita að fyrir liggi einróma samþykki fulltrúa í stjórn og varastjórn. Skal skrifleg greinargerð fylgja tillögu um veitingu merkisins og skal hún birt um leið og Gulllampinn er afhentur. Óheimilt er öðrum að bera "Gulllampann" en þeim sem hann hefur verið veittur.
Stjórn Blindrafélagsins er heimilt að gefa út sérstök merki í ákveðnum tilvikum sem veitt eru í viðurkenningarskyni.
9. Kafli Lagabreytingar og slit félagsins
20. gr.
Til þess að breyta lögum þessum þarf að ræða og samþykkja breytingar á aðalfundi. Til venjulegra lagabreytinga þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða, en til að slíta félaginu eða sameina það öðru félagi þarf ¾ greiddra atkvæða á tveimur fundum er slíka tillögu taka til meðferðar og skal annar þeirra vera aðalfundur. Lög þessi öðlast þegar gildi.
21. gr.
Lög Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi
voru samþykkt á fundum í Blindrafélaginu 28. desember 1939, á aðalfundi 4. febrúar 1940, á aðalfundi 6. febrúar 1944, á aðalfundi 7. maí 1954, á aðalfundi 1971, á almennum félagsfundi 16. október 1971, á aðalfundi 28. maí 1979, á félagsfundi 7. febrúar 1980, á aðalfundi 9. maí 1987, á almennum félagsfundi 7. október 1987, á aðalfundi 16. maí 1992, á almennum félagsfundi 3. Júní 1992, á aðalfundi 24. apríl 1997, á aðalfundi 21. maí 2002, á aðalfundi 15. maí 2004, á aðalfundi 7. maí 2005 og á aðalfundi 19. maí 2007 og á aðalfundi 13. maí 2010.
