Gulllampi Blindrafélagsins
Æðsta heiðursmerki Blindrafélagsins
Gulllampinn er æðsta heiðursmerki Blindrafélagsins.
Merkið er veitt þeim einstaklingum sem hafa skarað fram úr vegna starfa sinna í þágu blindra og sjónskertra. Gulllampann má því aðeins veita að fyrir liggi einróma samþykki fulltrúa í stjórn og varastjórn. Skal skrifleg greinargerð fylgja tillögu um veitingu merkisins og skal hún birt um leið og Gulllampinn er afhentur. Óheimilt er öðrum að bera "Gulllampann" en þeim sem hann hefur verið veittur. Gulllampinn hefur verið veittur eftirtöldum einstaklingum:
1. Rósa Guðmundsdóttir, Reykjavík
2. Arne Husveg, Noregi
3. Sveinn Ásgeirsson, Reykjavík
4. Gísli Sigurbjörnsson, Reykjavík
5. Sven Jensen, Danmörku
6. Guðjón Guðmundsson, Reykjavík
7. Halldór Sveinn Rafnar, Reykjavík
8. Oddur Ólafsson, Mosfellssveit
9. Leonard Nolte, Svíþjóð
10. Arvo Karvinen, Finnlandi
11. Andrés Gestsson, Reykjavík
12. Ragnar R. Magnússon, Selfossi
13. Helgi Seljan, Reykjavík,13 okltóber 2001
14. Helga Eysteinsdóttir, Reykjavík. Afhend á afmælisdegi Blindravinafélags Íslands.
15. Kristján Tryggvason, Akureyri, á aðalfundi Blindrafélagsins í maí 2007.
16. Arnþór Helgason, Reykjavík, á 70 ára afmæli Blindrafélagsins, 19 ágúst 2009, neitaði viðtöku
17. Dóra Hennesdóttir, Reykjavík, á 70 ára afmæli Blindrafélagsins, 19 ágúst 2009..
18. Elínborg Lárusdóttir, Reykjavík, á 70 ára afmæli Blindrafélagsins,19 ágúst 2009.
19. Gísli Helgason, Reykjavík, á 70 ára afmæli Blindrafélagsins,19 ágúst 2009, neitaði viðtöku
20. Svavar Þorvaldsson, Reykjavík, á 70 ára afmæli Blindrafélagsins,19 ágúst 2009.
21. Brynja Arthúrsdóttir, á aðalfundi Blindrafélagsins, 19 maí 2012.
Hljóðskrá með rökstuðningi og þakkarávarpi.
22. Guðmundur Viggósson, á aðalfundi Blindrafélagsins, 19 maí 2012.
Hljóðskrá með rökstuðningi og þakkarávarpi.
23. Gunnar Guðmundsson, á aðalfundi Blindrafélagsins, 19 maí 2012.
Hljóðskrá með rökstuðningi. Vegna veikinda átti Gunnar ekki heimagegnt.
24. Margrét F. Sigurðardóttir, á aðalfundi Blindrafélagsins, 19 maí 2012.
Hljóðskrá með rökstuðningi. Margrét átti ekki heimagegnt vegna veru erlendis.





