Úthlutunarreglur
Stjórn Blindrafélagsins hefur ákveðið af úthluta árlega styrkjum til félagsmanna sinna til kaupa á hjálpartækjum fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga. Fjármagn til styrkjanna skal sótt í Verkefnasjóð félagsins.
- Stjórn Blindrafélagsins auglýsir árlega á miðlum félagsins styrki til kaupa á hjálpartækjum.
- Styrkir skulu veittir til félagsmanna Blindrafélagsins, 18 ára og eldri.
- Styrkir eru eingöngu veittir til kaupa á sérstökum hjálpartækjum blindra og sjónskertra sem ekki eru niðurgreiddir eða styrktir að öðru leiti af opinberum aðilum.
- Styrkir skulu nema 60% af kaupverði hjálpartækisins, þó að hámarki kr. 40.000 hver styrkur.
- Stjórn Blindrafélagsins skal ákveða hverju sinni heildarupphæð veittra styrkja. Ef sú tala dugar ekki fyrir öllum samþykktum umsóknum, skal hámarksupphæð hvers styrks lækka hlutfallslega.
- Styrkþegar skulu framvísa reikningi vegna tækjakaupa til að fá samþykktan styrk greiddan. Reikningurinn má ekki vera eldri en 12 mánaða (aldrei eldri en frá síðustu úthlutun).
- Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu og heimasíðu félagsins.
- Styrkirnir skulu auglýstir á miðlum félagsins eigi síðar en 1. október ár hvert.
Meðfylgjandi úthlutunarreglur voru samþykktar á stjórnarfundi félagsins 12. mars 2009:





