Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Fara í leit

Blindrafélagið

Námssjóður Blindrafélagsins

Úthlutanir tvisvar á ári

Námssjóði Blindrafélagsins er ætlað að styrkja félagsmenn sem stunda eða hyggja á nám við viðurkenndar menntastofnanir. Blindrafélagið viðurkennir nám í Hringsjá og námskeið sem efla atvinnumöguleika og hæfni félagsmanna. Sami einstaklingur fær aðeins einn styrk úr hverri úthlutun þó svo hann stundi nám í fleiri en einni viðurkenndri skólastofnun.

Auglýst er eftir umsóknum á miðlum félagsins,  á Völdum greinum, á heimasíðunni og á póstlistanum blindlist.

Úthlutað er tvisvar á ári, að hausti og að vori.

Hægt er að sækja um rafrænt hér en einnig liggja umsóknareyðublöð frammi á skrifstofunni.

Umsókninni skal fylgja staðfesting á skólavist ásamt upplýsingum um námskostnað.


Sækja um styrk

Umsókn um úthlutun

Athugið: Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Óskað er eftir því að námstyrkurinn verði lagður inn á eftirfarandi bankareikning

Til að fyrirbyggja ruslpóst:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica