Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Fara í leit

Blindrafélagið

Opið hús

Alla þriðjudaga og fimmtudaga yfir vetrartímann

Yfir vetrartímann er Opið hús haldið alla þriðjudaga og fimmtudaga, kl. 13:00 - 15:00 í húsi Blindrafélagsins að Hamrahlíð  17. 

Í Opnu húsi er upplestur, frásagnir, tónlistarflutningur og margt fleira gert til skemmtunar. Fastir umsjónarmenn sjá um dagskrána og fá til sín góða gesti.

Einu sinni í mánuði er Opið hús haldið á laugardögum frá kl. 11:00 - 14:00. Þá er borinn fram hádegisverður og léttar veitingar. Þekktir einstaklingar koma oft í heimsókn og halda erindi eða fara með skemmtimál.

Þeir félagsmenn sem ekki hafa sótt Opið hús, en hefðu áhuga á að koma, geta sett sig í samband við Brynju Arthúrsdóttur aðaltrúnaðarmann og mun hún gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tekið verði á móti nýjum félögum.

Síminn á skrifstofunni, þar sem Brynja starfar, er  525 0000.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica