Erfðafjárgjafir – Erfðaskrár
Þó nokkur dæmi eru um það að Blindrafélagið og önnur sambærileg samtök séu arfleidd af verðmætum. Í gegnum árin hafa erfðafjárgjafir skipt miklu máli í að styðja við starfsemi samfélagslega mikilvægra verkefna á vettvangi frjálsra félagasamtaka.
Langflestir kjósa að skipta verðmætum sínum eftir sína daga á milli fjölskyldu, ættingja og vina. Dæmi eru þó um fólk sem ekki á neina lögerfingja, eða kjósa af einhverjum ástæðum að láta öll sín verðmæti eða hluta þeirra renna til tiltekinna verkefna sem einhverra hluta vegna standa þeim nærri.
Þær erfðafjárgjafir sem Blindrafélaginu hafa áskotnast í gegnum áratugina hafa allar verið félaginu afskaplega verðmætar og eiga ríkan þátt í að mörg mikilvæg hagsmunamál blindra go sjónskertra íslendinga hafa orðið að veruleika. Í undantekningartilvikum hafa erfðafjárgjafir verið svo skilyrtar að vandkvæðum hefur verið bundið að fara að vilja erfðafjárgjafa, slíkt er þó undantekning.
Þeir sem hafa hug á að láta erfðafjárgjafir renna til Blindrafélagsins og hafa þær skilyrtar að einhverju leiti er bent á styrktarsjóðinn Stuðningur til sjálfstæðis.
Til að heiðra minninngu þeirra sem arfleitt hafa Blindrafélgið að verðmætum frá árinu 2010 má finna nöfn viðkkomandi einstaklinga á undirsíðum þessarar síðu. Einnig eru birt nöfn þeirra sem hafa fært Blindrafélaginu gjafir og ekki óskað nafnleyndar.





