Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Fara í leit

Verkefni

Stuðningur til sjálfstæðis - Hausthappdrætti Blindrafélagsins 2009

Happdrættið er mikilvægt

Þann 19 ágúst s.l. voru liðin 70 ár frá stofnuin Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi. Allt frá stofnun hefur Blindrafélagið þurft að treyst á sjálfsaaflafé og stuðning almennigs til að fjármagna verkefni sín og starfsemi. Hefur happdrættið verið félaginu afar mikilvægt í fjáröflunum og verður svo vonandi áfram.  

Með því að kaupa happdrættismiða tekur þú virkan þátt í að styðja til sjálfstæðis blinda og sjónskerta einstaklinga á öllum aldri og stuðlar þannig að auknum lífsgæðum þeirra og um leið betra samfélagi.

Meðal ávinninga og verkefna Blindrafélagsins - með ykkar stuðningi

Aksturþjónusta, Blindrabókasafnið, Blindravinnustofan, Daisy mp3 hljóðbókaspilarar, félagslíf 2-3 í viku fyrir blinda og sjónskerta eldri borgara, íbúðir, leiðsöguhundar fyrir blinda og sjónskerta, námsstyrkir til menntunar fagfólks, sambýli fyrir fjölfatlaða einstaklinga, Sjónstöð Íslands núna Þjónustu og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.

Rafrænir happdrættismiðar - Seðilnúmer er happdrættismiðanúmer

Rafrænir happdrættismiðar voru sendir inn í heimabanka landsmanna föstudaginn 16. októberl sem valkrafa. Vinsamlegast athugið að seðilnúmerið á valkröfunni er einnig miðanúmer happdrættismiðans. Jafnframt voru sendir hefðbundnir miðar á alla einstaklinga 65 ára og eldri. Happdrættismiðinn kostar 1.939 krónur og er það tilvísun í stofnár félagsins, en Blindrafélagið var stofnað 1939 og er því 70 ára í ár.

Við viljum benda fólki á að prenta út upplýsingar um miðakaupin þegar krafan hefur verið greidd.

Ef þessi aðferð við miðakaup hentar þér ekki, getur þú hringt til okkar og keypt miða með greiðslukorti.

Meðal frábærra vinninga í ár 

• Volkswagen Polo 1.4 Comfortline, 85 hestöfl, frá HEKLU, að verðmæti kr. 3.060.000

• 20 ferðavinningar frá Heimsferðum, hver að verðmæti kr. 500.000

• 100 ferðavinningar frá Heimsferðum, hver að verðmæti kr 250.000

• 75 gistivinningar ásamt morgunverði í tvær nætur fyrir 2 auk kvöldverðar

annað kvöldið hjá einhverju Fosshótelanna, hver að verðmæti kr. 60.000

• 100 gjafakort í Kringluna, hvert að verðmæti kr. 25.000

Dregið 11. desember 2009.  Alls 297 skattfrjálsir vinningar að verðmæti kr. 49.250.000

Útdráttur

Vinningar verða dregnir út föstudaginn 11 desember. Upplýsingasími er  525 0000. Vinningaskrá verður birt á heimasíðu Blindrafélagsins og á síðu 290 í textavarpi sjónvarpsins. Einnig getur fólk hring til Blindrafélagsins og gefið upp kennitöluna sína og fengið upplýsingar um hvort það hafi unnið.
Útgefnir miðar eru samtals 156000. Vininga ber að  vitja innan árs frá útdrætti.  

 

Börn og ungmenni 

Á Íslandi eru hátt í 200 börn og ungmenni sem eru sjónskert (minna en 30% sjón) eða blind. Blindrafélagið berst fyrir því að þau geti verið félagslega virk og að þau eigi kosti á sömu menntunarmöguleikum og jafnöldrum þeirra stendur til boða. Það gerir félagið m.a. með námskeiðshaldi, starfsemi sérstaks æskulýðsfulltrúa og skipulögðu félagslífi. Auk þess styrkir félagið fagfólk fjárhagslega til náms, m.a. við kennsluráðgjöf og umferliskennslu blindra og sjónskertra einstaklinga.

 

Að vera virkur í samfélaginu

Einstaklingum sem eru á virkum atvinnualdri og eru blindir eða sjónskertir er jafn mikilvægt og öðrum að taka virkan þátt í samfélaginu. Virk atvinnuþátttaka er ein af forsendum þess að geta lifað sjálfstæðu og innihaldsríku lífi. Á Íslandi eru á fjórða hundrað einstaklingar á virkum atvinnualdri – margir þeirra einangraðri en vilji stendur til. Blindrafélagið stuðlar að auknum lífsgæðum þessa hóps, m.a. með fræðslu, ráðgjöf, akstursþjónustu, leiðsöguhundum, námsstyrkjum og öðrum þeim stuðningi sem leitað er eftir.

 

Eldri borgarar 

Stærsti hópur blindra og sjónskertra á Íslandi er eldri borgarar. Blindrafélagið leggur á það mikla áherslu að sjónskerðingin verði ekki til þess að þeir einangrist. Meðal annars heldur Blindrafélagið úti ferðaþjónustu, ráðgjöf, trúnaðarmannakerfi, hljóðmiðlaútgáfu og félagslífi sem sérstaklega er sniðið að þörfum blindra og sjónskertra eldri borgara.

 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica