Stuðningur til Sjálfstæðis - Hausthappdrætti 2010
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, fjármagnar starfssemi sína að langmestu leyti með sjálfsaflafé. Þar gegnir happdrætti félagsins, með sínum glæsilegu vinningum, veigamiklu hlutverki. Með því að kaupa happdrættismiða tekur þú virkan þátt í að styðja til sjálfstæðis blinda og sjónskerta einstaklinga á öllum aldri og stuðlar þannig að auknum lífsgæðum þeirra og um leið betra samfélagi.
Allir landsmenn á aldrinum 30 – 88 ára fá miða senda rafrænt og munu þeir birtast sem valkrafa í heimabönkum þeirra. Þeir sem eru 60 ára og eldri fá miðana einnig senda heim til sín á pappír. Hér má sjá miðann.
Blindrafélagið var stofnað árið 1939 og varð því 70 ára á síðasta ári. Með það í huga er verð miðanna ákveðið kr. 1.939,-
Alls eru 277 vinningar í boði: 2 bílavinningar frá Heklu hf, 125 ferðavinningar frá Heimsferðum og 100 gistivinningar frá Fosshótelum, 50 gjafakort í Kringluna.
Síðan í bankahruninu 2008 hefur stuðningur hins opinbera við starf Blindrafélagsins dregist verulega saman. Framlög af fjárlögum hafa minnkað. Engir styrkir fást lengur úr Framkvæmdasjóði fatlaðra. Framlög vegna leiðsöguhunda hafa lækkað hlutfallslega um allt að helming.
Ný verkefni félagsins eru m.a. á sviði aðgengismála. Blindir og sjónskertir einstaklingar eiga allt of oft í erfiðleikum að nýta sér internetið. Margar heimasíður eru þannig úr garði gerðar að talþjónar og stækkunarbúnaður virka illa eða alls ekki. Til að bæta þar úr, hefur Blindrafélagið ráðið til starfa aðgengisfulltrúa sem hefur það verkefni að benda fyrirtækjum og stofnunum á ýmis atriði sem betur mætti fara í vefsíðugerð.
Næsta stóra verkefni á þessu sviði verður að hanna nýjan íslenskan talþjón sem mun bæði henta blindu fólki og öllum öðrum sem þurfa að fá tölvutexta lesinn upp á sjálfvirkan hátt. Þetta er kostnaðarsamt og ögrandi verkefni sem mun krefjast samstillts átaks allra þeirra sem hagsmuna eiga að gæta. Takist vel til, getur þetta verkefni valdið straumhvörfum í lífsgæðum fjölda fólks.
Dregið var 11. júní 2010.
Glæsilegir vinningar:
- Volkswagen Golf frá HEKLU, 1,4 TSI 122 hestöfl, DSG sjálfskiptur, að verðmæti kr. 3.790.000
- Volkswagen Polo frá HEKLU, 1.2 MPI 70 hestöfl, að verðmæti kr.2.390.000
- 25 ferðavinningar frá Heimsferðum, hver að verðmæti kr. 500.000
- 100 ferðavinningar frá Heimsferðum, hver að verðmæti kr 250.000
- 100 gistivinningar ásamt morgunverði í tvær nætur fyrir 2 auk kvöldverðar annað
kvöldið hjá einhverju Fosshótelanna, hver að verðmæti kr. 60.000.
- 50 gjafakort í Kringluna, hvert að verðmæti kr. 25.000
Alls 277 skattfrjálsir vinningar að verðmæti kr. 50.930.000.
Dregið verður 10 desember 2010.
Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 525 0000.
Vinningaskrá verður birt í textavarpi sjónvarpsins á síðu 290 og hér á heimasíðu Blindrafélagsins.
Athugið að vinninga ber að vitja innan árs.
