Dagatal Blindrafélagsins 2012
Blindrafélagið gefur út borðdagatal fyrir árið 2012 til styrktar kaupum og þjálfun á leiðsöguhundum fyrir blinda og sjónskerta. Í dag eru aðeins starfandi 5 leiðsöguhundar á Íslandi og mikil þörf er á fjölgun þeirra. Góður leiðsöguhundur getur skipt sköpum fyrir blindan einstakling og veitt honum mikið frelsi og sjálfstæði í öllu umferli.
Á dagatalinu eru fallegar myndir af leiðsöguhundum ásamt stuttum umsögnum um gildi þeirra fyrir notandann.
Blindrafélagið býður fyrirtækjum að styrkja verkefnið með kaupum á þessu fallega dagatali.
Verðið er sem hér segir:
1 – 2 stk kr. 2.000/stk
3 – 5 stk kr. 1.800/stk
6 – 10 stk kr. 1.500/stk
11 – 20 stk kr. 1.200/stk
21 – 50 stk kr. 1.100/stk
51 – 100 stk kr. 1.000/stk
>100 stk kr. 900/stk
Fyrirtækjum stendur til boða þeirra eigin útgáfa af dagatalinu, en þá er logo fyrirtækisins sérprentað á dagatalið. Aukakostnaður við logó prentunina er kr. 35.000 (óháð fjölda dagatala).
Dagatal Blindrafélagsins er góð auglýsing fyrir fyrirtækið sem dugar í heilt ár og sendir einnig jákvæð skilaboð um að fyrirtækið styrki gott málefni.





