Styrktarfélagar Blindrafélagsins
Sjóntrygging að verðmæti 100 þúsund USD (Bandarískir dalir)
Styrktarfélagar Blindrafélagsins eru félaginu mjög mikilvægir. Styrktarfélagar greiða árgjald til félagsins, nú kr. 2.500. Allir styrktarfélagar Blindrafélagsins eru sjóntryggðir þannig að missi þeir sjón af slysförum, greiðast bætur að upphæð 100.000 USD (Bandarískir dalir).
Styrktarfélagar hafa félagsleg réttindi í Blindrafélaginu samanber 5. grein laga þess:
"Aðrir en að ofan greinir geta gerst styrktarfélagar og hafa þeir málfrelsi og tillögurétt á félagsfundum. Styrktarfélagar eru kjörgengir til trúnaðarstarfa á vegum félagsins og hafa þá óskoraðan atkvæðisrétt á fundum stjórna og nefnda sem þeir eru kjörnir til setu í".
Hægt er að gerast styrktarfélagi Blindrafélagsins með því að fylla út formið hér að neðan og senda það til félagsins.
Reikningsnúmer félagsgjalda Blindrafélagsins er 115-26-47023, kt. 470169-2149.
