Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi
Fræðsla
Skipulagsskrá

Skipulagsskrá Menntunarsjóðs til Blindrakennslu

Stofnaður af Blindrafélaginu, samtökum blindra og sjónskertra á Íslandi og Blindravinafélagi Íslands

1. grein

Sjóðurinn heitir Menntunarsjóður til blindrakennslu. Sjóðurinn er stofnaður 3. maí 2007 með jöfnu framlagi frá Blindrafélaginu, samtökum blindra og sjónskertra á Íslandi, kt. 470169-2149 og Blindravinafélagi Íslands, kt. 470169-3039.

2. grein

Tilgangur sjóðsins er að styrkja kennara og annað fagfólk til sérnáms hérlendis og erlendis sem tengist kennslu og þjónustu við blinda og sjónskerta einstaklinga. Styrkir mega nema skólagjöldum og kostnaði við námsgögn til eins árs í senn eða lengur ef stjórn sjóðsins telur það æskilegt. Einnig er heimilt að veita ferðastyrki vegna náms erlendis. Í vissum tilfellum er stjórn sjóðsins heimilt að veita uppihaldsstyrki meðan á námi stendur enda sé ljóst að styrkþegi getur ekki fjármagnað námið með öðrum hætti.

3. grein

Stofnframlag sjóðsins er framlag Blindrafélagsins, kr. 10.000.000 og Blindravinafélags Íslands, kr. 10.000.000, samtals kr. 20.000.000, - tuttugumilljónir króna -. Allir upphaflegir fjármunir sjóðsins og framtíðar tekjur skulu frjálsar til úthlutunar samkvæmt mati stjórnar hans hverju sinni.

Tekjur sjóðsins eru eftirfarandi:
1. Vextir og arður af eignum sjóðsins.
2. Fé og annað verðmæti sem safnast í nafni sjóðsins.

Sjóðinn skal ávaxta á hagkvæmastan hátt á hverjum tíma. Ekki má við ávöxtun sjóðsins taka áhættu sem gæti haft neikvæð áhrif á tilgang sjóðsins. Reikningsár sjóðsins skal vera almanaksárið. Reikningar sjóðsins skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda eða Ríkisendurskoðun.

4. grein

Sjóðnum skal skipuð sérstök sjóðsstjórn sem kemur saman þegar þörf krefur en þó hið minnsta einu sinni á ári. Stjórnina skulu skipa 5 fulltrúar: 2 tilnefndir af Blindrafélaginu og 1 til vara, 2 tilnefndir af Blindravinafélagi Íslands og 1 til vara. 1 tilnefndur af Kennaraháskóla Íslands og 1 til vara. Hlutverk sjóðsstjórnar er að annast úthlutun styrkja. Sjóðstjórn ber að halda formlega fundagerðarbók um starf sitt og skal afrit af fundargerðum skilað til stjórna Blindrafélagsins og Blindravinafélagsins.

5. grein

Styrki skal veita úr sjóðnum eigi sjaldnar en einu sinni á ári og skulu þeir auglýstir opinberlega eða á annan þann hátt sem stjórnin telur fullnægjandi. Stjórninni er heimilt að hafna umsóknum sem hún telur ekki fullnægja skilyrðum til úthlutunar. Stjórnin ákveður upphæð styrkja sem mega vera breytilegir.

6. grein

Einfaldur meirihluti skal ráða ákvörðunum stjórnar. Stjórnin ber ábyrgð á reikningum sjóðsins og skal birta þá árlega eigi síðar en 6 mánuðum eftir að reikningsári lýkur. Formaður stjórnar skal koma úr röðum fulltrúa Blindrafélagsins og Blindravinafélags Íslands og skal formennskan færast árlega milli félaganna.

7. grein

Vörsluaðili sjóðsins er Blindrafélagið (var áður Kennaraháskóli Íslands).

8. grein

Heimilt skal vera að sameina sjóðinn öðrum sjóðum með samskonar eða hliðstæðan tilgang, en til þess þarf samþykki allra stjórnarmanna. Verði sjóðurinn lagður niður, renna fjármunir hans að jöfnum hluta til stofnenda.

9. grein

Breytingar á stofnskrá þessari skulu lagðar til af meirihluta stjórnar sjóðsins og síðan samþykktar af stjórnum beggja stofnfélaganna.

10. grein

Um starfsemi sjóðsins fer eftir því sem segir í lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Staðfestingar dómsmálaráðherra skal leitað á skipulagsskrá þessari og breytingum sem kunna að verða gerðar á henni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica