Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi
Fræðsla
Úthlutunarreglur

Úthlutunarreglur fyrir Menntunarsjóð til blindrakennslu

Samþykktar af sjóðsstjórn

1. grein

Sjóðstjórninni ber að fara eftir skipulagskrá sjóðsins við úthlutun úr sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að styrkja kennara og annað fagfólk til sérnáms hérlendis og erlendis sem tengist kennslu og þjónustu við blinda og sjónskerta einstaklinga. Styrkir mega nema skólagjöldum, kostnaði við námsgögn  og ferðakostnaði vegna náms erlendis.

2. grein 

Stjórn sjóðsins auglýsir styrki að jafnaði einu sinni á ári með minnst fjögurra vikna fyrirvara  á vef Kennaraháskóla Íslands/Háskóla Íslands, Blindrafélagsins og á öðrum stöðum sem sjóðstjórnin telur árangursríkt hverju sinni. Umsóknum ber að skila á eyðublöðum sem fást á vef KHÍ/HÍ ásamt prófskírteinum úr háskólanámi, upplýsingum um starfsferil og upplýsingum um áformað nám. Umsóknum skal skilað til KHÍ/HÍ Stakkahlíð, 105 Reykjavík merktum Menntunarsjóði til blindrakennslu. Umsóknarfrestur er til 1. apríl ár hvert og skal úthlutun fara fram fyrir 1. maí. 

3. grein

Við meðferð umsókna er höfð hliðsjón af fyrra námi og starfsreynslu. Stjórnin leggur mat á námsáform umsækjenda og leitast við að velja umsækjendur með fjölbreyttan  bakgrunn. Öllum umsækjendum er svarað skriflega.

4. grein

Gerður er samningur um námið þar sem kveðið er á um réttindi og skyldur beggja samningsaðila. Í samningnum eru meðal annars ákvæði um skil á greinargerðum í lok hverrar annar.

5. grein

Styrkir eru greiddir út samkvæmt reikningum sem samþykktir hafa verið af stjórn sjóðsins.

 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica