Styrkir til fagfólks sem vinnur að málefnum blindra og sjónskertra til þátttöku á ráðstefnum, sýningum og námsskeiðum erlendis á árinu 2009
Blindrafélagið og Blindravinafélag Íslands hafa ákveðið að leggja sameiginlega allt að kr 2.000.000 í styrki sem ætlaðir eru fagfólki sem vinnur að málefnum blindra og sjónskertra til þátttöku í ráðstefnum, námsstefnum, námskeiðum og sýningum erlendis, enda sé ekki í boði full greiðsla fyrir þátttökuna úr hendi vinnuveitanda. Styrkirnir skulu veittir af stjórnum félaganna eða fulltrúum þeirra og í samræmi við eftirfarandi úthlutunarreglur:
- Allt fagfólk sem hefur atvinnu af málefnum tengdum blindum og sjónskertum getur sótt um umrædda styrki.
2. Í umsókninni skulu vera upplýsingar um ferða- og dvalarkostnað, þátttökugjöld, hvaða
viðburð sé um að ræða, hvar hann er haldinn og hvenær, einnig hversu langan tíma hann
mun taka.
3. Gerð skal glögg grein fyrir tilgangi viðburðarins og að hvaða leiti umsækjandi telur
þátttökuna muni efla sína faglegu þekkingu.
4. Eingöngu verða veittir styrkir til þátttöku í faglegum viðburðum sem haldnir verða á tímabilinu
apríl – desember 2009.
5. Stjórnir félaganna, eða fulltrúar þeirra, skulu ákveða upphæð hvers styrks, að hámarki
kr 150.000.
6. Samþykktur styrkur verður greiddur út þegar umsækjandi leggur fram fullnægjandi reikninga
fyrir ferðinni eða gerir grein fyrir kostnaðinum á annan sannanlegan hátt.
7. Styrkþegar skulu skila skýrslu til stjórna félaganna að lokinni ferð þar sem gerð verður grein
fyrir gagnsemi hins faglega viðburðar fyrir styrkþegann. Sé þess óskað, mun styrkþegi
koma á fund hjá styrktaraðilum og segja þar frá ferðinni.
8. Umsóknarfrestur vegna styrkja fyrir árið 2009 er til 31. mars n.k. og skal þeim skilað til
framkvæmdastjóra Blindrafélagsins, á netfangið: olafurh@blind.is
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 525 0003.
9. Stjórnum félaganna, eða fulltrúum þeirra, er heimilt að hafna styrkumsóknum án sérstaks
rökstuðnings.
10. Stefnt er að því að auglýsa samskonar styrki í desember 2009 og þá vegna faglegra
viðburða sem haldnir verða á árinu 2010. Þetta er háð því að fjármagn sé þá fyrir hendi.
