Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, daufblinda og sjónskerta einstaklinga hóf starfsemi sína 1 janúar 2009, en lög um stofnunina voru samþykkt á Alþingi Íslendinga þann 18 desember 2008. Stofnunin tók við hlutverki Sjónstöðvar Íslands, sem hafði verið starfandi frá 1978. Á sínum tíma átti Blindrafélagið mikinn þátt í stofnun Sjónstöðvar Íslands og aftur gegndi Blindrafélagið veigamiklu hlutverki þegar Þjónustu- og þekkingarmiðstöðin varð að veruleika, en hlutverk hennar er mun umfangsmeira en hlutverk Sjónstöðvarinnar var.
Heimasíða þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda.
