Nýjar stofnfrumurannsóknir geta hjálpað blindum
Norskir vísindamenn vinna að því að blindir fái sjónina aftur með hjálp stofnfrumumeðferðar. Þann 27. nóvember 2009 var opnuð norsk Miðstöð fyrir stofnfrumurannsóknir til að vinna að þessu markmiði:
Sjúkdómar á nethimnu augans geta orðið til þess að við missum sjónina. Morten C. Moe rannsóknarmaður og yfirlæknir á augndeild háskólasjúkrahússins í Osló (Ullivål), er að rannsaka hvernig nýta megi stofnfrumur til að hindrað sjónmissi, og einnig hvernig hægt sé að ná til baka tapaðri sjón. „Við vonumst til þess að geta einangrað stofnfrumur frá sjúklingum sem hægt er að nota til að endurnýja ónýtar frumur í nethimnunni“, segir Moe. Í yfirstandandi rannsóknum eru notaðar eigin stofnfrumur sjúklingsins, sem meðal annars finnast í lithimnu augans, í stað þess að nota stofnfrumur frá fósturvísum. Eigin stofnfrumur sjúklings eiga meiri möguleika á að koma verða að gagni þegar þær eru settar aftur í sama sjúkling.
Örugg aðferð
Stofnfrumurnar eru fjarlægðar með lítilli skurðaðgerð. Slíkar aðgerðir eru vanabundnar við flestar aðgerðir við Gláku. Þar af leiðandi vitum við að þetta er örugg aðferð til þess að ná í stofnfrumur segir Moe. Áskorunin við að nota eigin stofnfrumur sjúklingsins frekar en stofnfrumur úr fósturvísum er að vaxtarskilyrðin eru auðveldari. „Áður en hægt er að meðhöndlað sjúklinga þarf að liggja fyrir vissa um að frumurnar þróist nákvæmlega eins og þörf er á“, segir Moe. Moe telur nokkuð öruggt að niðurstaða úr rannsóknunum verði eins og vonir standa til, en getur ekki sagt til um hvort það verði eftir þrjú ár eða tíu, sem sjúklingar geti fengið stofnfrumu meðhöndlun við augnsjúkdómum.
Bjørn Nicolaissen prófessor, sem er yfirmaður við miðstöð augnrannsókna við háskólasjúkrahúsið í Osló, segir verkefni Moe´s vera leiðandi á alþjóðlega vísu og engin vafi sé á því að rannsóknin muni leiða til þess að hægt verði að koma í veg fyrir sjónskerðingu og hægt verði að ná til baka tapaðri sjón. Við væntum mikils af þessu verkefni á komandi árum. Þetta gefur mikla möguleika – bæði þegar til styttri og lengri tíma er litið, segir Nicolaissen.
Morten C. Moe vinnur samhliða rannsóknunum sem augnlæknir á augndeildinni. Hann telur það mikilvægt að þeir sem vinni að rannsóknunum hafi góða tengingu við þá lækna sem sjá um meðhöndlun sjúklinga.
Ný miðstöð
„Með tilkomu Miðstöðvarinnar í stofnfrumurannsóknum, sem staðsett er í Osló, skapast nálægð á milli rannsóknaraðila og sjúklinga og það er auðvitað mjög mikilvægt“ segir yfirmaður Miðstöðvarinnar, Joel Glover prófessor. „Rannsóknir á stofnfrumum er ætlað að skapa meðferðarúrræðum fyrir sjúklingana“ segir Glover. Á sama tíma mun stofnunin bera ábyrgð á að kynna þekkingu á stofnfrumutilraunum g meðferðum fyrir almenningi, læknum og sjúklingum. Glover varar við að óvandaðir aðilar á þessum markaði villi um fyrir mönnum og hvetji fólk til þess að nota tíma og fé í tilboð og úrlausnir sem ekki eru vel unnar og geta verið hættulegar. Hann vill því að Miðstöðin bjóði einnig ráðgjöf til fólks sem íhugar að verja fé til slíkra úrlausna eða meðferða.
Í augnablikinu eru meðferðir sem byggja á notkun stofnfruma aðeins að litlu leyti notaðar. En mikilvægar rannsóknir á þessu sviði eiga sér stað víða um heim og því ekki ólíklegt að hægt verði í náinni framtíð að bjóða stofnfrumumeðferðir við mörgum sjúkdómum segir Glover.
Þýðing: KH/KHE
