Tillögur framkvæmdanefndar um breytt fyrirkomulag í þjónustu við blinda, sjónskerta og daufblinda.
Vegna fréttatilkynningar frá menntamálaráðuneytinu 16. nóvember s.l. viljum við benda á að fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér málið nánar er hægt að nálgast skýrslu framkvæmdanefndarinnar hér á Word formi og á hljóðformi hér neðst í fréttinni.
Skýrsluna er einnig hægt að lesa á pdf formi á heimasíðu menntamálaráðuneytisins undir eftirfarandi tengli: http://www.menntamalaraduneyti.is/nyrit/nr/4306
Hljóðform skýrslunnar má nálgast hér neðar í fréttinni.
Blindrafélagið er að undirbúa kynningarfund fyrir félagsmenn þar sem farið verður yfir tillögurnar og spurningum sem kunna að vakna verður reynt að svara. Dagsetning og nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Tillögur framkvæmdanefndar á hljóðformi:
07 Fjöldi blindra og sjónskertra
10 Jöfnunarsjóður sveitafélaga
13 Sérfræðiþjónusta við blinda og sjónskerta
17 Greiningar- og ráðgjafastöð
22 Stofnun nýrrar þjónustumiðstöðvar
38 Þjónustuhópar og þjónustustörf





