Á aðalfundi Blindrafélagsins árið 2007 var samþykkt lagabreyting þess efnis að aðalfundur skyldi ákveða laun stjórnarmanna Blindrafélagsins.
Lesa meiraÁ aðalfundi Blindrafélagsins, 17. maí, voru í fyrsta sinn veittir hvatningarstyrkir til nokkura aðalfélaga.
Stjórn félagsins ákvað, fyrir skömmu, að koma á fót hvatningarstyrkjum og setti um þá ákveðnar reglur, t.d. varðandi umsóknir. Skipuð var úthlutunarnefnd
og í henni eiga sæti þau Björk Vilhelmsdóttir, Erna Guðmundsdóttir og Helgi Seljan.
Í hádegishléi á aðalfundi Blindrafélagsins, þann 17. maí, afhenti Lionshreyfingin á Íslandi Blindrarfélaginu peningaupphæð sem safnaðist með sölu rauðu fjaðrarinnar í apríl sl.Þessi árlega söfnun Lionsmanna gekk að þessu sinni afar vel, en alls komu í hlut Blindrafélagsins 12 og hálf milljón króna og rennur það fé óskipt í leiðsöguhundaverkefni félagsins.
Lesa meiraÁ aðalfundi Blindrafélagsins sem haldinn verður í húsi félagsins að Hamrahlíð 17, laugardaginn 17. maí mun Lionshreyfingin á Íslandi afhenda Blindrafélaginu afrakstur af sölu Rauðu fjaðrarinnar, landssöfnunar Lionshreyfingarinnar, sem stóð yfir dagana 3. til 6. apríl s.l.
Lesa meira