Samþykkt tillaga um stjórnarlaun í Blindrafélaginu
Á aðalfundi Blindrafélagsins árið 2007 var samþykkt lagabreyting þess efnis að aðalfundur skyldi ákveða laun stjórnarmanna Blindrafélagsins.
Í samræmi við það var eftirfarandi tillaga um laun stjórnarmanna borin upp og samþykkt á aðalfundi félagsins þann 17. maí sl. með 18 atkvæðum gegn 9:
„Á næsta starfsári stjórnar Blindrafélagsins skulu stjórnarmönnum greidd stjórnarlaun fyrir setna stjórnarfundi samkvæmt taxta fjármálaráðuneytisins um þóknun fyrir stjórnar og nefndarlaun, nú kr. 5.277 fyrir hvern fund“.
Til nánari skýringar, þá jafngildir þetta 3,4 einingum, (hver eining = 1.552 kr.).
Grein





