Svo hljóðandi fréttt er á RUV.is. Fréttin fjallar um kosningaþátttöku blindra til stjórnlagaþings Lausnn sem kynnt er í ffréttinni er samkvæmt tillögu lögmaqnns Blindrafélagsins, Páls Rúnars M. Kristjánssonar.
Eftirfarandi bréf var sent frá skrifstofu Ragnars Aðalsteinssonar til Ögmundar Jónassonar dóms og mannréttindamálaráðherra í dag.fyrir hönd einstaklinga sem telja mannrétttindi brotin á sér í aðdraganda og við framkvæmd fyrirhugaðra kosninga til stjórnlagaþings.
Stjórn Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi, samþykkti á fundi sínum mánudaginn 22 nóvember að fela lögmanni félagsins, Páli Rúnari M. Kristjánssyni að senda dóms- og mannréttindaráðherra, Ögmundi Jónassyni, bréf með athugasemdum við framkvæmd fyrirhugaðra kosninga til stjórnlagaþings.
Dómur hefur fallið sem staðfestir ríkar skyldur sveitarfélaga til að veita fötluðum einstaklingum ferðaþjónustu sem gerir þeim kleift að stunda atvinnu og tómstundir. Þá skyldu hafa hins vegar nokkur sveitarfélög vanrækt. Við slíkt verður ekki unað enda munu fatlaðir ekki sætta sig við að mannréttindi þeirra séu virt að vettugi.
Fimmtudaginnn 11 nóvember kl 17:00 verður Blindrafélagið með félagsfund. Umfjöllunarefni félagsfundarins verður gildi Blindrafélagsins. Ólafur Páll Jónsson heimspekingur mun fjalla um gildi almennt, gildi Blindrafélagsins og hvernig þeu geta birst í starfi félagsins útá við og starfi félagsmanna innávið. Á sama tíma verða afhjúpuð veggspjöld með gildum Blindrafélagsins.
Lesa meira... var óskað eftir aðkomu Blindrafélagsins að hönnun vefsíðu fyrir kosningarnar þannig að hún yrði aðgengileg. Blindrafélagið tilnefndi Birkir Rúnar Gunnarsson, aðgengisfulltrúa félagsins í þessa vinnu.
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi og Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga taka í notkun fyrstu íbúðina sem ætluð er til hæfingar og endurhæfingar. Verkefnið er samstarfsverkefni Blindrafélagsins og Miðstöðvarinnar og mun fyrsti einstaklingurinn byrja í hæfingu fimmtudaginn 4. nóvember.