Bresk blindrasamtök í fjáröflunargöngu á hálendi Íslands
Bresku samtökin RP fighting blindness ganga um hálendi Íslands í fjáröflunarskyni. Tilgangurinn er að safna fé til stuðnings rannsóknum við að finna meðferðir gegn Retinitis Pigmentosa, sem eru ólæknandi arfgengir sjónhimnusjúkdómar og aðal orsakavaldur alvarlegrar sjónskerðingar og blindu hjá ungu fólki.
Ferð RP fighting blindness á Íslandi hófst sunnudaginn 17 júlí, en þá fór hópurinn, sem telur 17 einstaklinga, með rútu í Landmannlaugar, með viðkomu á Þingvöllum, Geysi og Gullfoss. Mánudaginn 18 júlí er gegnið frá Landmannalaugum í Hrafntinnusker. Þriðjudaginn er síðan farið frá Hrafntinnuskeri í Hvanngil. Á miðvikudeginum er síðan gegnið frá Hvanngili í Skófluklif. Á þeirri dagleið munu nokkrir félagar frá Blindrafélaginu slást í för með breska hópnum og ganga með þeim seinustu einu og hálfu dagleiðina. Seinasti dagurinn á göngu er síðan frá Skófluklifi í Strútslaug og um Svörtufjöll. Á föstudeginum verður síðan haldið af stað til Reykjavíkur með viðkomu í Blá lóninu. Hópurinn fer síðan til baka heim laugardaginn 23 júlí.
Íslenskir fjallaleiðsögumenn sjá um skipulag og leiðsögn.
Hér má nálgast frétt um ferðina á heimasíðu RP fighting Blindness





