Fréttir
Andlát - Andrés Gestsson
Minningarathöfn verður miðvikudaginn 8 júlí kl 14:00 að Hamrahlíð 17.
Síðastiðinn föstudag lést Andrés Gestsson, félagi í Blindrafélaginu til margra áratuga. Útför Andrésar mun fara fram í kyrrþey að hans eigin ósk. Blindrafélagið mun hinsvegar bjóða fjölmörgum vinum og félögum Andrésar að kveðja Andrés við minningarathöfn sem haldin verður í salnum í Húsi Blindrafélagsins að Hamrahlíð 17. Minningarathöfnin mun fara fram miðvikudaginn 8 júlí kl 14:00. Sérstakur minnigardiskur Valdra greina hefur verið gefinn út og má hlusta á hann með því að smella hér.
