Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Fara í leit

Blindrafélagið

Fréttir

Úthlutun úr HjálpartækjasjóðiArticle

25.09.2009

Umsóknarfrestur er til 4 október 2009

 

Stjórn Blindrafélagsins ákvað á fundi sínum 12. mars s.l. af úthluta árlega styrkjum til félagsmanna sinna til kaupa á hjálpartækjum fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga. Styrkina skal auglýsa á miðlum félagsins fyrir 1. okt. ár hvert.

Í samræmi við þessa ákvörðun eru hjálpartækjastyrkir nú auglýstir í fyrsta skipti og er umsóknarfrestur til og með 4. október 2009.

Stefnt er að því að úthluta styrkjum á Degi hvíta stafsins, 15. október n.k.

Úthlutunarreglur sem samþykktar voru í stjórn félagsins og má sjá hér.

Væntanlegum umsækjendum er bent á að öll umbeðin gögn þurfa að fylgja með umsóknum.

Sækja má um styrki á sérstöku umsóknareyðublaði.

Umsóknir skulu berast á netfangið: olafurh@blind.is eða skriflega á skrifstofu félagsins.

Senda grein í vefpósti




Þetta vefsvæði byggir á Eplica