Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Fara í leit

Fréttir

Könnun meðal félagsmanna

Form á upplýsingum og Valdar greinar

05.11.2009

Könnun um á hvað formi félagsmenn vilja fá upplýsingar frá félaginu og á viðhorfum til Valdra grein hefur verIð sett inn á heimasíðu Blindrafélagsins.

Í nýrri stefnumörkun stjórnar Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi er sett fram það markmið að allir félagsmenn skuli fá upplýsingar frá félaginu á því formi sem þeir kjósa og er þeim aðgengilegt. Til að afla upplýsinga og skrá niður óskir allra félagsmanna hvað þetta varðar, þá hefur verið brugðið á það ráð að setja upp könnun á heimasíðu félagsins þar sem félagsmenn geta svarað spurningum um hvað form hentar þeim best. Jafnframt þá eru settar fram nokkrar spurningar varðandi Valdar greinar til að fá hugmynd um hvað mætti betur fara í útgáfu þeirra. Þessar upplýsingar munu síðan verða notaðar til að skrá niður á hvaða formi hver og einn félagsmaður vill fá upplýsinga frá félaginu þannig að skrifstofa félagsins geti sent öllum upplýsingar á því formi sem hverjum og einum hentar.

Stefnt er að því að hringja í þá félagsmenn sem ekki hafa tök á að svara könnunni á heimasíðu félagsins, til að fá upplýsingar um hvaða form á upplýsingum hentar þeim.

Allir sem eiga þess kost að svara könnunni á netinu eru hvattir til að gera það svo að minni vinna verði við að hringja út í þá félagsmenn sem ekki eiga þess kost að svara  könnunni á netinu,

Könnunina má nálgast hér.

Senda grein í vefpósti





Þetta vefsvæði byggir á Eplica