Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Fara í leit

Blindrafélagið

Fréttir

Kynning og sölusýning á Akureyri á hjálpartækjum og áhöldum fyrir blinda og sjónskerta

13.11.2009

Blindrafélagið kynnir ýmsar gerðir af sérhönnuðum hjálpartækjum og áhöldum fyrir blint og sjónskert fólk  í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð, næstkomandi fimmtudag, föstudag og laugardag, 19. – 21. nóvember.

Blindrafélagið kynnir ýmsar gerðir af sérhönnuðum hjálpartækjum og áhöldum fyrir blint og sjónskert fólk. Þetta eru aðallega ódýr áhöld og tæki, sem auðvelda fólki lífið og dagleg störf, svo sem: heimilisáhöld, úr og klukkur, spil og leikir fyrir börn og fullorðna, tæki og áhöld til merkinga og fleira

Sölusýningin verður haldin í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð, næstkomandi fimmtudag, föstudag og laugardag, 19. – 21. nóvember.

Fimmtudag og föstudag verður opið frá kl. 12 – 18 og laugardag frá kl. 10 – 14.

Harpa Völundardóttir, starfsmaður Blindrafélagsins verður á staðnum. Hún er í síma 699-4225.  Einnig verður Halldór Sævar Guðbergsson frá Þjónustu- og þekkingarmiðstöðinni á staðnum. Hann er með síma 618-9859.

Senda grein í vefpósti




Þetta vefsvæði byggir á Eplica