Fréttir
Úthlutun úr námssjóði Blindrafélagsins - Vorönn 2010
Námssjóður Blindrafélagsins auglýsir nú eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum fyrir vorönn 2010. Umsóknarfrestur er til 15.febrúar 2010.
Námssjóður Blindrafélagsins auglýsir nú eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum fyrir vorönn 2010. Umsóknarfrestur er til 15.febrúar 2010.
Sjóðnum er ætlað að styrkja félagsmenn sem eru í viðurkenndu námi. Hægt er að sækja um rafrænt á heimasíðu félagsins með því að smella hér, en einnig liggja umsóknareyðublöð frammi á skrifstofunni. Þeir sem óska eftir umsóknareyðublöðum eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við Klöru Hilmarsdóttur á skrifstofu félagsins í síma 525 0000 eða með netpósti á netfangið klara@blind.is Öllum þeim sem þess óska verða send umsóknareyðublöð.
Meðfylgjandi gögn
Umsókninni skal fylgja staðfesting á skólavist ásamt staðfestingu um að umsækjandi hafi náð tilskildum árangri til áframhaldandi náms.
