Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Fara í leit

Blindrafélagið

Fréttir

Ný heimasíða Blindrafélagsins

Stórbætt aðgengi og ýtarlegri upplýsingar

14.02.2009

Blindrafélagið hefur tekið í notkun nýja vefsíðu. Vefsíðan er mikið breytt frá gömlu síðunni og er gerð í Eplcia 2 vefumsjónarkerfinu. Blindrafélagið var í samstarfi við Hugsmiðjuna við smíði síðunnar og fyrirtækið Sjá varðandi aðgengismál.

Opnun  nýju heimasíðunnar er einn af mörgum atburðum sem stjórn Blindrafélagsins hefur einsett sér að hrinda í framkvæmd í tilefni 70 ára afmælis Blindrafélagsins sem er á þessu ár. Við opnun nýju heimasíðunar þá er jafnframt kynnt sérstakt afmælismerki Blindrafélagsins. Afmælismerkið er þannig að á eftir nafni félagsins, sem nú er jafnframt ritað með blindraletri fyrir ofan hið hefðbundna letur, þá er talan 70 með lampann úr merki félagsins innan í núllinu.

Hn nýja heimasíða býður upp á mun meiri upplýsingar um starfsemi félagsins en sú gamla gerði. Þeir sem þekkja til gömlu síðunnar munu vonandi fljótt sjá hversu mikil framför þessi nýja síða er frá þeirri gömlu, sem var orðin barn síns tíma.

Senda grein í vefpósti




Þetta vefsvæði byggir á Eplica