Fréttir
Gerviaugað virkar fyrir Ron
Second Sight® og Moorfields sjúkrahúsið í London standa sameiginlega að merkilegri tilraun þar sem prófuð er gagnsemi gerviauga.
Miðvikudaginn 4 mars var viðtal í BBC við einn af þeim blindu einstaklingum sem tekur þátt í tilraun með gerviauga, sem framleitt er af fyrirtækinu Second Sight®. Tengill inn grein þar sem tilraunin er kynnt.
Viðtalið við Ron virðist gefa tilefni til bjartsýni um að þessi nýja tækni geti í framtíðinni orðið til þess að koma í veg fyrir að sumir verði alblindir.
