Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi
Þjónusta
Ferðaþjónusta

Ferðaþjónusta

Blindrafélagið annast ferðaþjónustu blindra í Reykjavík í samvinnu við Hreyfil/Bæjarleiðir og Strætó bs. Sveitarfélögin á Seltjarnarnesi, Álftanesi, Akureyri  og í Hafnarfirði bjóða einnig upp á samsvarandi þjónustu.  Þá er samningur við Skaftárhrepp bundinn við einn einstakling.

Þeir einstaklingar sem rétt eiga á þjónustunni, skila til Blindrafélagsins vottorði frá Þekkingar- og þjónustumiðstöð blindra, sjónskertra og daufblindra um rétt sinn til þjónustunnar.

Þjónustan felst í því að notendur panta leigubifreið frá Hreyfli/Bæjarleiðum (BSO á Akureyri) og skrifa reikninginn á Ferðaþjónustu blindra, sem annast alla skráningu og sendir út reikninga til hlutaðeigandi mánaðarlega.  Notendur greiða sem samsvarar einu strætisvagnafargjaldi fyrir hverja ferð, þ.e. hverja viðkomu. Þó er þak á fjárhæð hverrar ferðar.

Þeir einstaklingar sem búa í sveitarfélögum sem ekki hafa samið við ferðaþjónustuna, eða geta ekki framvísað vottorði frá  Þekkingar- og þjónustumiðstöðinni, eiga kost á að sækja um heimild til að taka leigubifreið og skrifa hjá Ferðaþjónustu blindra. Þannig fá þeir afslátt sem Hreyfill/Bæjarleiðir gefur, auk þess sem þeir greiða umsýslugjald fyrir hverja ferð til Blindrafélagsins.

Nánari upplýsingar fást á skrifstofu félagsins.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica