Ferðaþjónusta blindra
Ferðaþjónusta blindra er ferðaþjónusuúrræði, sem nýtir leigubílaþjónustu. sem komið hefur verið á í fjölda sveitarfélaga þar sem lögblindir íbúar eru búsettir. Samkvæmt lögum um málefni fatlaðra bera sveitarfélög ábyrgð á að bjóða þeim sem ekki geta nýtt sér almenningssamgöngur ferðaþjónustu sem gerir þeim kleyft að stunda atvinnu, nám og tómstundir. Í upphafi árs 2011 var gerð sú breyting á 1. grein laga um málefni fatlaðra, að nú er kveðið á um að við framkvæmd laganna skyldi litið til alþjóðlegra samninga sem Ísland á aðild að, svo sem Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í 20 grein samningsins er fjallað um ferlimál einstaklinga, í greininni segir m.a.:
"Aðildarríkin skulu gera árangursríkar ráðstafanir til þess að tryggja að einstaklingum sé gert kleift að fara allra sinna ferða og tryggja sjálfstæði fatlaðra í þeim efnum, eftir því sem frekast er unnt, m.a. með því:
a) að greiða fyrir því að fatlaðir geti farið allra sinna ferða með þeim hætti sem, og þegar, þeim hentar og gegn viðráðanlegu gjaldi,"
Kostnaðarþátttaka notenda í ferðaþjónustu blindra er mun hærri en kostnaðarþátttaka notenda í ferðaþjónustu fatlaðra. Þjónustustigið er jafnframt mun betra í ferðaþjónustu blindra. Í ferðaþjónustu blindra er til dæmis hægt að hringja á leigubíl og fá ferðaþjónustu fyrirvaralaust á meðan að yfirleitt þarf að panta bíl með allt að 24 klst fyrirvara í ferðaþjónustu fatlaðra.
Samkvæmt úttekt Reykjavíkurborgar á annarsvegar kostnaði borgarinnr við hverja ferð í ferðaþjónustu blindra og hinsvegar í ferðaþjónustu fatlaðra á árinu 2010, kom í ljós að hver ferð í ferðaþjónustu fatlaðra er um 69% dýrari en hver ferð í ferðaþjónustu blindra.
Í dag annast Blindrafélagið,ferðaþjónustu blindra í Reykjavík í samvinnu við Hreyfil/Bæjarleiðir og Strætó bs. Sveitarfélögin á Seltjarnarnesi, Álftanesi, Akureyri og í Hafnarfirði bjóða einnig upp á samsvarandi þjónustu. Þá eru samningar við Skaftárhrepp og Mosfellsbæ bundnir við einn einstakling í hvoru sveitarfélagi.
Þeir einstaklingar sem rétt eiga á þjónustunni, skila til Blindrafélagsins vottorði frá Þjónustu og þekkingarmiðstöð blindra, sjónskertra og daufblindra einstaklinga um rétt sinn til þjónustunnar.
Þjónustan felst í því að notendur panta leigubíl frá Hreyfli/Bæjarleiðum (BSO á Akureyri) og skrifa reikninginn á Ferðaþjónustu blindra, sem annast alla skráningu og sendir út reikninga til hlutaðeigandi mánaðarlega. Notendur greiða sem samsvarar einu strætisvagnafargjaldi fyrir hverja ferð, þ.e. hverja viðkomu. Þó er þak á fjárhæð hverrar ferðar. Sveitarfélögin niðurgreiða einungis ferðir sem farnar eru á þjónustutíma strætó. Utan þjónstutímana greiðir notandi fullt gjald fyrir þjónustuna.
Í Reykjavík, Álftanesi og Seltjarnanesi er fyrirkomulagið þannig að notandi á rétt á 60 ferðum á mánuði, þar af 18 vegna einkaerinda, aðrar ferðir þurfa að vera vegna vinnu, náms eða læknisheimsókna. Fyrir hverja ferð upp að 3499 krónum er kostnaðarþátttaka notenda 350 krónur, fyrir ferð á bilinu 3500 - 4999 krónur er kostnaðarþátttaka notenda 700 krónur, fyrir ferð sem kostar 5000 - 5999 krónur er kostnaðarþátttaka notenda 1050 kr. o.s.frv. Á Akureyri greiða notendur 350 krónur fyrir hverja ferð og allan kostnað sem fer fram yfir 1500 krónur. Einstaklingsmiðaðar lausnir og samningar eru í gangi gagnvart bæði Mosfellsbæ og Hafnarfirði.
Þeir félagsmenn Blindrafélagsins sem búa í sveitarfélögum sem ekki hafa samið um ferðaþjónustu blindra, eða eru ekki skilgrgreindir lögblindir, eiga kost á að sækja um heimild til að taka leigubifreið og skrifa hjá Ferðaþjónustu blindra. Þannig fá þeir afslátt sem Hreyfill/Bæjarleiðir gefur, auk þess sem þeir greiða umsýslugjald fyrir hverja ferð til Blindrafélagsins.
Sjá samanburð á ferðaþjónustu blindra og ferðaþjónustu fatlaðra.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu félagsins.
