Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi
Þjónusta
Félagsráðgjöf

Ráðgjöf

Hjá Þjónustu og þekkingarmiðstöðinni og Blindrafélaginu

Félagsráðgjöf fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga er á verksviði Þjónustu og þekkingarmiðstöðvarinnar. Smella hér til að skoða nánar á vef miðstöðvarinnar.

Á skrifstofu Blindrafélagsins starfar ráðgjafi á félagssviði sem er félagsmönnum til ráðgjafar og aðstoðar. Ráðgjafi Blindrafélagsins er Klara Hilmarsdóttir. Klara@blind.is.

Ráðgjafi á félagssviði tekur á móti nýjum félagsmönnum og aðstandendum þeirra og veitir þeim fræðslu um þá aðstoð sem stendur þeim til boða á vegum ríkis og bæja og kynnir þeim réttindi þeirra til endurhæfingar og starfa við nýjar aðstæður. 

Ráðgjafi veitir aðstoð við atvinnuleit og ráðgjöf vegna atvinnuviðtala.  Hann hefur umsjón með gerð vinnusamninga öryrkja og eftirfylgd á vinnustað. Ráðgjafi stendur vörð um réttindi og hagsmuni félagsmanna og aðstoðar þá við að ná fram rétti sínum.

Ráðgjafi kynnir fyrir félagsmönnum þær félagslegu úrlausnir sem standa þeim til boða í tómstunda og afþreyingarstarfi innan Blindrafélagsins.

Ráðgjafi hefur umsjón með vistun gangna varðandi skráningu nýrra félagsmanna.

Ráðgjafi, ásamt aðaltrúnaðarmönnum, hefur umsjón með Trúnaðarmannakerfi félagsins og sér um að skipuleggja fræðslu trúnaðarmanna í formi námskeiða  og upplýsingafunda.  Ráðgjafi í samstarfi við aðaltrúnaðarmann deilir verkefnum til trúnaðarmanna eftir þörfum hverju sinni.

Ráðgjafi annast ásamt framkvæmdastjóra úthlutun á félagslegu húsnæði á vegum félagsins.

Ráðgjafi hefur umsjón með Námssjóði Blindrafélagsins og sjóðnum Blind börn á Íslandi.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica