Kynningarstarfsemi
Kynningarstarfsemi
Heimsóknir í skóla og stofnanir
Kynningafulltrúi Blindrafélagsins heimsækir skóla, stofnanir og fyrirtæki sem þess óska. Sagt er frá mismunandi sjónskerðingum og blindu og áhrifum sjónmissis. Fram fer kynning á hvíta stafnum, leiðsöguhundum og sagt er frá og sýnd ýmis hjálpartæki. Einnig eru sýnishorn af blindraletri og stækkuðu letri. Leiðbeint er varðandi umgengni og aðstoð við blint og sjónskert fólk. Fræðslan getur staðið yfir í fjörtíu til áttatíu mínútur. Þeir sem óska eftir kynningu hafi samband við:
Brynju Arthúrsdóttir kynningafulltrúa, brynja@blind.is
