Leiðsöguhundar
Blindrafélagið í samstarfi við Heilbrigðisráðuneytið og með öflugum stuðningi Lions hreyfingarinnar á Íslandi, flutti inn frá Noregi 4 leiðsöguhunda fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga haustið 2008. Í dag eru alls starfandi 5 leiðsöguhundar á Íslandi.
Í reglugerð nr 233/2010 og fylgiskjölum, um úthlutun á hjálpartækjum á vegum Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, er kveðið á um að leiðsöguhundar fyrir blinda og sjónskerta séu hjálpartæki. Þjónustu og þekkingarmiðstöðin ber ábyrrgð á úthlutun leiðsöguhubda til notenda.
Lesa spurningar og svör um úthlutunar og þjálfunarferli leiðsöguhunda.
