Fara í leit

Þjónusta

Sjónlýsingar og sjónlýsendur

Helgina 13 - 15 janúar 2012 stóð Blindrafélagið fyrir sjónlýsingarnámskeiði. Leiðbeinandi var Joel Snyder. Sjónlýsing snýst um að lýsa í orðum sjónrænum upplifunum fyrir þeim sem ekki sjá. Sjónlýsingar eru notaðar við margskonar aðstæður og tilefni. Svo sem eins og í söfnum til að lýsa því sem er til sýnis, í leikhúsum til að lýsa því sem er að gerast á sviðinu, í sjónvarps- og kvikmyndum til að lýsa því sem fyrir augu ber og einnig við hverskonar aðrar athafnir, eins og brúðkaup, íþróttakappleiki og fleira.

Frekari upplýsingar um sjónlýsingar og Joel Snyder.

Sjónlýsendur

Hér eru upplýsingar um þá einstaklinga sem gefa kost á sér til að taka að sér sjónlýsingarverkefni og sóttu sjónlýsingarnámskeið Joels Snyders sem haldið var dagana 13 - 15 janúar 2012 að tilstuðlan Blindrafélagsins.

Eva Björk Káradóttir  

Sími: 847-9945
Netfang: ebk7@hi.is

Nám:

  • Sjónlýsinganámskeið hjá Joel Snyder á vegum Blindrafélagsins 2012
  • Útskrifast með BA-gáðu í listfræði í júní 2012 frá Háskóla Íslands.
  • Myndlistaskóli Reykjavíkur 2007: Námskeið í teikningu, módelteikningu og sjólskynjun

Guðbjörg Hjartardóttir Leaman

Tölvupóstfang: didda1810@hotmail.com
Sími: 5345828 og
Gemsi: 6955828

Nám:

  • Sjónlýsinganámskeið hjá Joel Snyder á vegum Blindrafélagsins 2012
  • Yfirstandandi, Listaháskóli Íslands, meistaragráða í kennslufræði sjónlista, áætluð námslok vor/haust 2012
  • 2010-2011 Listaháskóli Íslands, Diplóma í kennslufræði sjónlista
  • 1987-1989 Slade School of Fine Art, University of London, meistaragráða Málaradeild
  • 1983-1987 Myndlista og Handíðaskóli Íslands, Nýlistadeild
  • 1982-1983 Aalands Folkhögskola, Konstlinjan
  • 1979- 1982  Fjölbrautarskólinn í Breiðholti,Listasvið

Sara Friðgeirsdóttir

saraeik@hotmail.com
GSM: 8471618

Nám:

  • Sjónlýsingarnámskeið á vegum Blindrafélagsins hjá Joel Snyder 2012
  • Talsetningarnámskeið hjá Stúdíó Sýrlandi 2011
  • Er menntuð Sviðslistakona frá The Royal Scottish Academy of Music and Drama í Glasgow Scotlandi 2009.

Sigrún Þ. Broddadóttir

sigrbrod@hi.is
sími: 553 1001, 8642338

Nám og störf:

  • Sjónlýsingarnámskeið á vegum Blindrafélagsins í janúar 2012. Kennari Joel Snyder
  • Stunda diplómunám í kennslufræði fyrir háskólakennara við Háskóla  Íslands (30e, áætluð námslok des 2012)
  • Lauk MA- gráðu í Menntunarfræði frá Háskóla Íslands, Menntavísindasviði í febrúar 2010
  • Hef starfað sem aðjúnkt við Menntavísindasvið, Háskóla  Íslands (fyrrum Kennaraháskóla Íslands) frá 2006
  • Starfaði sem þroskaþjálfi, forstöðumaður í búsetuþjónustu og síðast sem ráðgjafi í þjónustu við fatlað fólk hjá Ás styrktarfélagi í Reykjavík frá 1998-2006
  • Starfaði sem þroskaþjálfi hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Austurlandi frá 1994-1997
  • Útskrifaðist sem þroskaþjálfi 1994 (þriggja ára nám)
  • Starfaði á leiksskóla m.a. sem forstöðukona í eitt ár frá 1985-1991
  • Súdent frá Menntaskólanum á Egilsstöðum 1982Hef í gegnum árin sótt hin ýmsu námskeið, ráðstefnur og fyrirlestra sem tengjast málefnum fatlaðs fólks

Hef sérstaklega áhuga á að veita einstaklingum þjónustu (til að byrja með). Held að reynsla mín af starfi með fötluðu fólki í gegnum árin muni nýtast mér vel á þeim vettvangi.


Þórný Björk Jakobsdóttir

thojak@centrum.is

Farsími: 863 4490

Nám:

  • 2012 Námskeið í hljóðlýsingum hjá Joel Snyder
  • 2004 Táknmálstúlkur frá HÍ (BA próf)
  • 1990 Tækniteiknari frá Iðnskólanum í Hafnarfirði
  • 1987 Stúdent úr Verzlunarskóla Íslands
  • Var í kvöldskóla í Innanhússarkitektaskólanum í Kaupmannahöfn vorið 1989.


Störf:

Er í vinnu hjá Öryrkjabandalagi Íslands. Hóf störf þar 2008 sem aðstoðarmaður fyrrverandi formanns, sem var verulega sjónskertur. Það má segja að hluti af þeirri vinnu hafi verið einhvers konar hljóðlýsing. Nú sinni ég hinu og þessu á skrifstofunni, táknmálstúlka eða rittúlka þegar þarf og aðstoða framkvæmdastjóra og formann.

Er með eigið fyrirtæki sem heitir Hraðar hendur. Sinni rittúlkun fyrir heyrnarskerta í gegnum það. Hef unnið sem rittúlkur frá árinu 1994. Sem rittúlkur sat ég til dæmis þrjú ár í Þroskaþjálfaskólanum, var ráðinn rittúlkur í Kennaraháskólanum og HÍ. Ég hef kynnst hinum ýmsu deildum innan háskólanna í gegnum rittúlkun og hef því nokkuð víðtæka yfirborðsþekkingu á mörgum hlutum.

Teikna fjöll á útsýnisskífur, þegar beðið er um. Teiknaði t.d. útsýni á skífurnar á Perlunni, Esju og í Viðey. Skífurnar sem ég hef teiknað eru í kringum 20.

Bjó á Sólheimum í Grímsnesi í 4 ár. Sá um Jurtastofu Sólheima í 1 ár þar sem ég framleiddi sápur og sjampó. Sá um rekstur Verslunarinnar Völu á Sólheimum í 3 ár.

Hef leikstýrt Sólheimaleikhúsinu 4 sinnum. Árið 2011 setti ég upp verk þar sem ég skrifaði sjálf og ber nafnið Verndarenglar. Árið 2012 mun ég leikstýra uppsetningu á Kardemommubænum og er það þá 5. sinn sem ég leikstýri þar. Hef einnig leikið með Leikfélagi Selfoss.

Hef þýtt nokkrar greinar í gegnum tíðina og rittúlkað fyrirlestra af ensku og dönsku yfir á íslensku.


Þórunn Hjartardóttir

hjartardottir@gmail.com
símar: 5512512 / 6912512

Nám:

  • Námskeið í hljóðlýsingum hjá Joel Snyder á vegum Blindrafélagsins, janúar 2012.
  • Námskeið í gerð stuttmynda, hljóðsetningu og tæknivinnu í Stúdíó Sýrlandi, 6 vikur haustið 2010.
  • Námskeið í svæðisleiðsögn um Seyðisfjörð og Hérað, 30 háskólaeiningar; Þekkingarnet Austurlands (Seyðisfirði) 2008.
  • Endurmenntun HÍ, ítalska, veturinn 2007.
  • Opni Listaháskólinn, 2000-2001, Photoshop l,ll,lll; Painter;QuarkXpress; Dreamveawer; Illustrator (grafísk forrit sem tengjast myndlist, umbroti og vefsíðugerð).
  • Fréttamannapróf RÚV 1996.
  • Stúdentspróf í spænsku, kvöldskóli FB, 1995.
  • Myndlista- og handíðaskóli Íslands 1982 - 1987, útskrifuð úr Nýlistadeild (jafngildi BA-prófs), einnig 1 ár í grafíkdeild.
  • FB, Listasvið 1980 - 1982.

Störf:

  • Myndlistarmaður, hljóðbókalesari, þýðandi, prófarkalesari. Ég vinn um þessar mundir við hljóðbókalestur hjá Blindrabókasafni íslands og Hljóðbók; einnig sem ritstjóri og lesari dagblaðs- og tímaritahluta hljóðtímarits Blindrafélagsins.
  • Ég hef unnið fjölmörg störf sem tengjast fjölmiðlum: útvarp (lesari, þýðandi og þáttagerð á rás eitt); sjónvarp (þula); blaðamaður (Gestgjafinn); prófarkalestur (Fróði, Viðskiptablaðið, Bjartur, Salka, Listaháskóli Íslands, Listasafn Reykjavíkur, BA- og Meistararitgerðir o.fl.); þýðingar (Læknafélagið, Rauði kross Íslands, Salka, JPV, PP-forlag, Bjartur, fjölmargir einkaaðilar o.fl.); auglýsingar (texta- og hugmyndasmiður, Nonni & Manni).
  • Sem lesari fyrir Blindrabókasafnið, Blindrafélagið, Hljóðbók, Háskólaútgáfuna, ÖBÍ, Nokia (OVI MAPS), Sagnabrunn, Félag lesblindra, Myndsýn og auðvitað útvarp og sjónvarp o.fl.
  • Einnig ýmis störf sem tengjast myndlist og myndlistarstofnunum: á skrifstofu SÍM; umsjón íslenska skálans í Feneyjum fyrir Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar sumarið 2007; framkvæmdastjóri Skaftfells á Seyðisfirði í afleysingum 2008; verkefnisstjóri og ýmislegt fleira við 700IS Hreindýraland 2009, 2010 og 2011 o.fl.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica