Trúnaðarmannakerfi Blindrafélagsins
Mikilvægur stuðningur
Aðaltrúnaðarmenn Blindrafélagsins eru fjórir, Brynja Arthúrsdóttir sem jafnframt er yfirtrúnaðarmaður, Elín Bjarnadóttir, Haraldur Mattíasson og Helga Friðriksdóttir. Auk þess eru að störfum félagslegir trúnaðarmenn sem eru boðnir og búnir til að vera félagsmönnum til liðsinnis.
Trúnaðarmannakerfi Blindrafélagsins var sett á laggirnar árið 1998 í kjölfar tillögu nefndar á vegum heilbrigðisráðuneytisins sem lauk störfum í lok árs 1997.
Í lokaáliti nefndarinnar segir: Það er álit nefndarinnar að fela eigi Blindrafélaginu að skipuleggja fræðslu og stuðningskerfi blindra og sjónskertra við þá sem missa sjón og veita félaginu til þess fjárveitingu. Ennfremur að augnlæknum beri að upplýsa þá sem greinast lögblindir um að þeir eigi kost á slíkri ráðgjöf.
Trúnaðarmannakerfið hefur verið í þróun og endurnýjun síðan því var komið á stofn og hafa margir félagsmenn boðið fram starfskrafta sína í þágu blindra og sjónskertra og starfað ötullega að því að veita upplýsingar og andlegan stuðning félögum sínum sem standa á erfiðum tímamótum.
Jafningjastuðningur
Trúnaðarmenn Blindrafélagsins eru blindir og sjónskertir sem liðsinna öðrum blindum og sjónskertum. Starfið felst í að veita andlegan stuðning þeim sem hafa eða eru að missa sjón og aðstandendum þeirra. Enginn er hæfari til að leiðbeina þeim sem hafa mist sjón en sá sem þegar er blindur eða sjónskertur. Blindur eða sjónskertur trúnaðarmaður getur sett sig í spor þess sem aðstoðina sækir. Hann getur verið fyrirmynd um hvernig hægt er að lifa eðlilegu og innihaldsríku lífi sem blindur eða sjónskertur einstaklingur Trúnaðarmaður á að geta veitt almennar upplýsingar um réttindi og þjónustu við blinda og sjónskerta. Hann á að vera vakandi fyrir nýjungum á sviði hjálpartækja og endurhæfingar og hvetja til virkrar þátttöku í samfélaginu.
Trúnaður
Trúnaðarmaður er bundinn þagnarskyldu um allt er hann verður áskynja í starfi sínu og varðar skjólstæðinga hans. Trúnaðarmenn starfa undir handleiðslu og faglegri stjórn ráðgjafa Blindrafélagsins. Nauðsynlegt hefur reynst að halda góðri heildaryfirsýn yfir félagatal Blindrafélagsins til þess að vinna trúnaðarmanna geti gengið vel fyrir sig og gagnast sem best fyrir þá sem á þurfa að halda. Það hefur fallið í hlut ráðgjafa að skipuleggja starfið miðað við aðstæður hverju sinni og útbúa skrár og önnur gögn til þess að auðvelda trúnaðarmönnum störf sín.
Námskeið og fræðsla
Stöðugt bætast við félagsmenn sem vilja notfæra sér starf trúnaðarmanna en aðrir falla frá og mikilvægt er að þeir hafi sem bestar upplýsingar um stöðu mála á hverjum tíma. Ráðgjafi félagsins sér um að skipuleggja námskeið og fræðslu þeim til handa. Sá sem gefur af sjálfum sér, miðlar af þekkingu sinni og reynslu þarf sjálfur á stuðningi að halda og eru því haldin sérstök námskeið fyrir trúnaðarmenn félagsins tvisvar á ári þar sem þeir fá tækifæri til þess að koma saman og meta stöðuna, deila reynslu sinni og fræðast um hvernig hægt sé að sinna þessum störfum með sem bestum árangri.





