Aðild að Blindrafélaginu
Spurt og Svarað
Hverjir geta gerst félagar í Blindrafélaginu?
Aðild að Blindrafélaginu getur verið með tvennskonar hætti. Aðalfélagar samkvæmt 4. grein laga félagsins og styrktarfélagar samkvæmt 5. grein laga félagsins.
Í 4. grein laga Blindrafélagsins segir:
"Félagsmaður getur hver sá orðið sem hefur sjón sem nemur 6/18 eða minna, eða hefur sjóngalla eða augnsjúkdóm sem jafna má við greinda sjónskerðingu að mati yfirlæknis Sjónstöðvar Íslands ( nú Þjónustu og þekkingarmiðstöðvar fyir blinda, sjónskerta og daufblinda) og greiðir árstillag til félagsins í samræmi við ákvörðun aðalfundar.
Forráðamenn ólögráða barna sem uppfylla skilyrði til félagsaðildar skv. 1. mgr. fara með félagsleg réttindi og skyldur barnanna. Sama á við um þá félagsmenn sem sökum fjölfötlunar eða af öðrum ástæðum geta ekki sinnt félagslegum skyldum sínum eða gætt hagsmuna sinna."
Í 5. grein laga Blindrafélagsins segir:
"Aðrir en að ofan greinir geta gerst styrktarfélagar og hafa þeir málfrelsi og tillögurétt á félagsfundum. Styrktarfélagar eru kjörgengir til trúnaðarstarfa á vegum félagsins og hafa þá óskoraðan atkvæðisrétt á fundum stjórna og nefnda sem þeir eru kjörnir til setu í."
