Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi
Tölvumál

Hvers þarf að gæta þegar keypt er tölva sem keyra á hjálparbúnað fyrir blinda og sjónskerta?

Meðfylgjandi ráðgjöf varðandi tölvubúnað fyrir blinda og sjónskerta er fengin frá Arnþóri Helgasyni: 

Vinnsluminni

Gæta þarf þess að vinnsluminni vélanna sé nægilegt. Yfirleitt dugar 1 gb en æskilegt er að vinnsluminni þeirra sem nota stækkunar- og/eða hljóðbúnað sé meira.

Skjákort

Ganga þarf úr skugga um að skjákort vélanna sé vel samhæfanlegt og henti þeim blindraleturs- tal- eða stækkunarbúnaði sem á að nota.

Viðurkennd merki

Rétt er að vanda valið og kaupa helst viðurkennd merki. Ódýr merki hafa því miður oftsinnis gefið slæma raun. Kannið, áður en þið festið kaup á tölvu, hvort einhverjir blindir eða sjónskertir notendur hafi reynslu af slíkum vélum. Leitið ráða hjá starfsfólki Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvarinnar eða reyndum tölvunotendum sem þið hafið aðgang að.

Eigin tölva

Hægt er að setja einmenningstölvur þannig upp, að hver notandi geti haft sinn eigin aðgang. Brýna nauðsyn ber til að blindir eða sjónskertir notendur hafi sinn eigin aðgang að heimilisvélinni því að skjástillingar þeirra fara yfirleitt ekki saman við það sem henta þykir sjáandi fólki.

Öruggast er að blindur eða sjónskertur tölvunotandi hafi sína eigin tölvu og sé óháður öðrum tölvunotendum.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica