Fundargerð aðalfundar Blindrafélagsins 2009, haldinn laugardaginn 23.maí 2009 að Hamrahlíð 17, kl.10.00 árdegis
Fundargerð Aðalfundar Blindrafélagsins 2009. Fundurinn var haldinn laugardaginn 23.maí 2009 að Hamrahlíð 17, Reykjavík og hófst kl.10.00 árdegis
1 SETNING FUNDARINS
Formaður félagsins Kristinn Halldór Einarsson setti fundinn og bauð fundargesti velkomna. Hann minntist þess að 19.ágúst næstkomandi verður Blindrafélagið 70 ára. Áformað er að halda veglega upp á afmælisdag félagsins og er undirbúningur fyrir afmælishátíðina nú í fullum gangi. Í tilefni að afmælisári minntist hann stofnenda og fyrrum forystumanna og þess ötula starfs sem og allur fjöldi félagsmanna hefur unnið á undanförnum áratugum. Starfs sem skilað hefur Blindrafélaginu í þeirri stöðu að vera ein sterkasta og öflugasta mannréttindastofnun þjóðarinnar. Hann sagði frá því að ný stefnumótun Blindrafélagsins hefði verið í mótun undanfarna mánuði og muni sú vinna verða kynnt og rædd á félagsfundum í haust þar sem kallað verður eftir hugmyndum og samstarfi félagsmanna.
Í allri stefnumótun er mikilvægt að horfa fram á veginn og meta þau tækifæri og þá hagsmuni sem liggja í framtíðinni. Auður félagsins liggur í félagsmönnum sjálfum og því samfélagi sem þeim tekst að skapa á komandi árum. Með því að huga að framsækinni hugmyndafræði og mannréttindagildum verður best heiðruð minning stofnenda og annarra sem komið hafa að mótun félagsins frá upphafi og mun það einnig skila félaginu farsællega fram á vegin um ókomna framtíð.
2 KYNNING VIÐSTADDRA
3 KOSNING FUNDARSTJÓRA OG FUNDARRITARA
Halldór Sævar Guðbergsson voru Sigþór Unnsteinn Hallfreðsson voru skipaðir fundarstjórar og Klara Hilmarsdóttir var skipaður fundarritari.
4 INNTAKA NÝRRA FÉLAGSMANNA
Ráðgjafi Blindrafélagsins Klara Hilmarsdóttir las upp nöfn nýrra félagsmanna á árinu og voru þeir alls 51 að tölu en þar af voru 4 nýir félagsmenn með foreldraaðild vegna barna sinna.
5 LÁTINNA FÉLAGSMANNA MINNST
Þá las ráðgjafi upp nöfn þeirra félagsmanna sem látist höfðu á árinu en þeir voru 32 samtals. Fundarmenn risu úr sætum og minntust látinna félagsmanna með einnar mínútu þögn.
6 FUNDARGERÐ SÍÐASTA AÐALFUNDAR
Fundargerð síðasta aðalfundar var borin upp til samþykktar. Fundargerðin var lesinn inn á Valdar greinar og birtist á Blindlist. Ein athugasemd var gerð á fundargerð þar sem Ólafur Viggó Sigurbergsson var sagður Sigurðsson. Var þessu breytt og fundargerðin samþykkt með áorðnum breytingum.
7 SKÝRSLA STJÓRNAR
Kristinn Halldór Einarsson lagði fram skýrslu stjórnar og fylgdi henni úr hlaði með því að minnast á nokkur áhersluatriði. Hann sagði frá því að síðastliðið haust hefði mikil vinna farið í að fá framkomið lagafrumvarp um nýja Þjónustu-og þekkingarmiðstöð lagt fyrir alþingi. Allt stefndi í að svo yrði ekki vegna þess mikla álags sem á þinginu var vegna efnahagshrunsins. Það tókst að fá frumvarpið lagt fram á síðustu dögum þingsins og samþykkt. Hefði það ekki tekist var hætta á því að allt áframhaldandi starf nýrrar þjónustu og þekkingarmiðstöðvar við kennslu og þjálfun blindra og sjónskertra mundi verða í uppnámi á nýju ári. Annað stórt verkefni ársins var Leiðsöguhundaverkefnið en kostnaður við komu fjögurra leiðsöguhunda til landsins hafði næstum tvöfaldast vegna falls krónunnar. Upphaflegur samningur við Heilbrigðisráðuneytið hafði gert ráð fyrir fimm hundum til landsins. Allar tölur í þeim samningi voru í íslenskum krónum og voru því forsendur samningsins í sjálfu sér brostnar þegar krónan féll. Stjórn félagsins fór fram á það við ráðuneytið að það kostaði fjóra hunda í stað fimm á uppfærðu gengi til þess að vega upp á móti hruni krónunnar og var vel tekið í þá beiðni af hálfu ráðuneytisins. Í upphafi leiðsöguhundaverkefnisins hafði þáverandi heilbrigðisráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson skipað nefnd til þess að kanna hvernig framtíðarfyrirkomulag leiðsöguhunda á Íslandi væri best fyrir komið. Nefndin hefur skilað af sér áliti til ráðherra og var niðurstaðan sú að leiðsöguhundar skuli skilgreindir sem hjálpartæki og að úthlutun þeirra skuli vera á forræði Þjónustu-og þekkingarmiðstöðvarinnar en að Blindrafélagið komi að reglulegri umsjón, eftirfylgni og rekstri. Hann sagði frá því að Trúnaðarmannakerfið hefði verið eflt á árinu og að þær breytingar lofuðu góðu með bættum tengslum félagsins við félagsmenn. Þá hefði heimasíðan verið endurbætt og hefði nú vottun 1 og 2 frá Sjá ehf og Öryrkjabandalaginu. Endurbæturnar á heimasíðunni hafa hlotið mjög jákvæð viðbrögð. Formaðurinn tæpti á nokkrum atriðum til viðbótar úr skýrslu stjórnar sem sjá má nánar í Árskýrslu Blindrafélagsins fyrir árið 2008. Umræður um skýrsluna voru engar og því ákveðið að ganga til afgreiðslu á næsta lið á dagskrá fundarins.
8 ÁRSREIKNINGAR
Ólafur Viggó Sigurbergsson löggiltur endurskoðandi kynnti reikninga ársins 2008. Nokkrar fyrirspurnir og umræður urðu um reikningana: Sigtryggur Eyþórsson spurði um hvað stæði að baki háum húsnæðiskostnaði og 100% hækkun á rekstrarkostnaði á síðastliðnu ári. Hann spurði einnig um það hvort bréfin í Byr væru skráð á nafnverði eða hvort þau væru niðurfærð miðað við núverandi virði. Hann bað einnig um skýringar varðandi kostnað við könnun Capacent-Gallup á viðhorfi almennings til blindra og sjónskertra og á innanfélagskönnun þeirri sem gerð um viðhorf félagsmanna til þjónustu Blindrafélagsins, þá spurði hann líka um það hvort stórir vinningar í happadrætti félagsins hefðu verið dregnir út. Ólafur Haraldsson framkvæmdastjóri leysti greiðlega úr öllum þessum fyrirspurnum og sagði að kostnaður við húsnæðið væri að mestum hluta utanhúss vegna þess að þurft hefði að skipta um drenlagnir kringum húsið og að hækkaður rekstrarkostnaður væri nær eingöngu vegna leiðsöguhundaverkefnisins. Þá skýrði Ólafur frá því að stofnbréfin í Byr væru skráð á nafnvirði en erfitt væri að gera sér grein fyrir því á þessari stundu hversu raunverulegt verðgildi þeirra væri. Hann sagði frá því að stóru vinningarnir í happadrættinu hefðu ekki verið dregnir út undanfarin 3-4 ár en hlutfall útdreginna vinninga og seldra miða hefði haldist svipað undanfarin ár. Kostnaður við könnun Capacent-Gallup er 1,2 milljónir en innanfélagskönnunin var gerð af starfsmanni Blindrafélagsins og féll því undir launalið félagsins.
Ólafur Þór Jónsson og Gísli Helgason kváðu sér hljóðs og vildu koma því á framfæri að oft væri það snúið fyrir blinda og sjónskerta að kynna sér reikningana stuttu fyrir aðalfund og gerðu það að tillögu sinni að halda mætti sérstakan fund til kynningar á reikningunum fyrir aðalfundinn í þeim tilgangi að auðvelda áhugasömum að átta sig á reikningunum. Ólafur Haraldsson tók vel í þessar uppástungur og benti á að hann væri fús til þess að svara spurningum félagsmanna varðandi reikningana fyrir aðalfund ef óskað væri eftir því. Fundarstjórar þökkuðu Ólafi Viggó Sigurbergssyni sérstaklega fyrir vel unnin störf í þágu Blindrafélagsins á undanförnum árum og tók fundurinn heilshugar undir þær þakkir. Að loknum umræðum voru reikningarnir bornir upp til samþykktar og voru einróma samþykktir.
9 ÁRSTILLAG FÉLAGSMANNA FYRIR NÆSTA ALMANAKSÁR OG TILLAG ÆVIFÉLAGA
Tillaga stjórnar Blindrafélagsins var að félagsgjald fyrir árið 2010 yrði óbreitt frá því sem nú er, eða kr.2500 krónur á ári fyrir almenna félagsmenn og kr.25.000 fyrir ævifélaga. Tillagan var samþykkt samhljóða.
10 KOSNINGAR
A. Kosning í aðalstjórn.
Fyrir fundinum lá að kjósa tvo menn í aðalstjórn en í framboði voru Þau Arnheiður Björnsdóttir, Ágústa Eir Gunnarsdóttir, Bergvin Oddsson, Friðgeir Jóhannesson og Ólafur Þór Jónsson. Fundarstjóri bauð frambjóðendum að kynna sig og tóku þau Ágústa Eir Gunnarsdóttir og Ólafur þór Jónsson til máls og lýstu áhuga sínum á því að taka þátt í að móta áframhaldandi blómlegt starf Blindrafélagsins.
Eftir að kosning fór fram kynnti Ólafur Viggó Sigurbergsson niðurstöður. Atkvæði greiddu alls 53 félagsmenn og þar af 22 utan kjörstaðar. Atkvæði féllu þannig að Arnheiður Björnsdóttir hlaut 30 atkvæði, Ágústa Eir Gunnarsdóttir hlaut 35 atkvæði, Bergvin Oddsson hlaut 16 atkvæði, Friðgeir Jóhannesson hlaut 11 atkvæði og Ólafur Þór Jónsson hlaut 14 atkvæði. Þær Arnheiður og Ágústa hlutu því löglega kosningu tilsetu í aðalstjórn Blindrafélagsins.
B. Kosning í varastjórn
Þá fór fram kosning til varamanna í stjórn. Kosið var um þrjá frambjóðendur þá Friðgeir Jóhannesson, Hauk Sigtryggsson og Ólaf Þór Jónsson. Atkvæði féllu þannig að Friðgeir hlaut 19 atkvæði, Haukur hlaut 36 atkvæði og Ólafur Þór hlaut 27 atkvæði. Auðir seðlar voru 13 og ógildir 11. Þeir Haukur Sigtryggsson og Ólafur Þór Jónsson voru kosnir til setu í varastjórn Blindrafélagsins
C. Kosning í nefndir.
Samkvæmt lögum félagsins skal fara fram kosning í þrjár nefndir á aðalfundi, Kjörnefnd, Tómstundanefnd og Skemmtinefnd ásamt útnefningu um skoðunarmenn reikninga til tveggja ára. Kristinn H. Einarsson formaður félagsins lagði fram tillögur stjórnar um skipan í þessar þrjár nefndir.
Í Tómstundanefnd voru tilnefnd: Lilja Sveinsdóttir, Kolbrún Sigurjónsdóttir og Elín Bjarnadóttir
Í Skemmtinefnd voru tilnefnd: Jóna Garðarsdóttir, Grímur Þóroddsson, Aldís Magnúsdóttir, Bergvin Oddsson og Sigurjón Einarsson.
Í Kjörnefnd voru tilnefnd: Brynja Arthúrsdóttir, Bessi Gíslason og Ragnar Magnússon en til vara Sigtryggur Eyþórsson. Skoðunarmenn reikninga voru tilnefnd Jón Heiðar Daðason og Ólöf Guðmundsdóttir.
Tillögur stjórnar voru bornar upp til samþykkis og voru þær allar einróma samþykktar.
MATARHLÉ
10. a HVATNINGARSTYRKIR
Kristinn Halldór Einarsson kynnti umsóknir um Hvatningarstyrki Blindrafélagsins fyrir árið 2009. Þrjár umsóknir bárust og voru þær allar samþykktar af úthlutunarnefnd. Þeir sem hlutu styrkina þetta árið voru Bergvin Oddsson til þess að hanna og þróa spilið „Business Iceland“ Eyþór Þrastarson vegna ferðar til Frakklands til frönskunáms og Jón Helgi Gíslason til stofnunar ráðgjafafyrirtækis .
11. LAUN STJÓRNARMANNA
Formaður félagsins Kristinn Halldór Einarsson lagði fram tillögu stjórnar um að laun stjórnarmanna verði óbreytt eða það sem nemi 2 ríkiseiningum fyrir hvern setin fund bæði stjórnarmanna og varastjórnarmanna. en tvær ríkiseiningar gera núna kr.5.168.00
Umræður um málið urðu nokkrar og tóku til máls Einar Lee, Ólafur Þór Jónsson, Gísli Helgason, Sigurður A. Sigurjónsson, Sigtryggur Eyþórsson, Kristinn Einarsson og Halldór Sævar Guðbergsson. Skoðanir voru skiptar en eftir umræður var tillagan borin undir atkvæði og var hún samþykkt með 15 atkvæðum á móti 2.
12. LAGABREYTINGAR
Bergvin Oddson tók til máls og sagðist hafa sent inn tillögu að lagabreytingu fyrir fundinn sem hann vildi draga til baka. Hann gerði það að tillögu sinni að stjórnin skipaði nefnd til þess að endurskoða lög félagsins fyrir næsta aðalfund og að sú nefnd tæki þá afstöðu til fyrrnefndar lagabreytingatillögu. Tillaga Bergvins um skipun nefndar til að endurskoða lög Blindrafélagsins fyrir næsta aðalfund var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
13. ÖNNUR MÁL
Undir liðnum önnur mál tóku til máls:
Jóna Gísladóttir sem spurði um hversu miklu fé væri varið til starfsins í Opnu húsi fyrir utan laun starfsmanna. Ólafur Haraldsson svaraði Jónu og sagði að heildarkostnaður við opna húsið á undanförnu ári hefði verið kr.2.285.403.00 fyrir utan laun starfsmanna félagsins
Eyþór Þrastarson ræddi um skilgreiningar ferða innan Ferðaþjónustu blindra og hvatti til endurskoðunar á tilhögun þjónustunnar. Ólafur Haraldsson svaraði Eyþóri og sagði það staðreynd að skilgreiningar á tilefni ferða væru oft álitamál en þar sem lítill hluti notenda þjónustunnar í Reykjavík notuðu fleiri ferðir en sagt er fyrir um í skilmálunum þá væri ekki ástæða til þess að endurskoða ferðaþjónustuna að svo komnu máli.
Friðgeir Jóhannesson þakkaði stuðning við sig í kosningum og benti á galla í tilhögun ferðaþjónustunnar þar sem svo virtist vera að notendur sem samnýttu ferðir væru að borga margfalt verð miðað við lengd ferðar. Ólafur svaraði Friðgeiri og hvatti hann til þess að koma á skrifstofuna með gögn sem sýndu fram á að verið væri að taka margfalt gjald af notendum því að ef rétt reyndist þá væri brýnt að taka málið upp við Hreyfil-Bæjarleiðir og leiðrétta slíkt.
Einar Lee gagnrýndi val á spurningum í viðhorfskönnun Gallup og bað um svör varðandi tilgang Blindrafélagsins með könnuninni. Kristinn svaraði Einari og skýrði tilgang stjórnar Blindrafélagsins með tvíþættri viðhorfskönnun Gallup, annarsvegar meðal almennings og hinsvegar meðal félagsmanna Blindrafélagsins. Hann skýrði frá því að niðurstöður könnunarinnar væru mikilvæg vísbending fyrir mótun réttindabaráttu og fjáröflunar til framtíðar og að niðurstöður könnunarinnar yrðu kynntar í Blindrasýn sem koma á út á afmælisdegi félagsins í ágúst.
Halldór Sævar tók til máls og talaði um að viðhorfskannanir væru mikilvægar, þar komi fram margvíslegar áhugaverðar upplýsingar sem hægt sé að nota sem tæki til eflingar félagsstarfsemi, réttindabaráttu og kynningarstarfssemi. Halldór gagnrýndi orðaval og líkingamál stjórnmálamanna og fréttamiðla undanfarnar vikur og mánuði sem töluðu mikið um hversu menn hefðu verið blindir á viðvörunarljós og heyrnarlausir á viðvörunarbjöllur varðandi efnahagshrunið. Hann hvatti félagsmenn til þess að vera á verði gagnvart slíku orðavali. Hann vék fáum orðum að ferðaþjónustunni og benti á að mikilvæg réttindi hefðu náðst fram á undanförnum árum sem vert væri að standa vörð um, en miðað við ástand horfur í samfélaginu nú um stundir benti allt í þá átt að barátta næstu missera yrði varnarbarátta. Nýja þekkingar og þjónustumiðstöðin væri mikilvægt skref fram á við í baráttunni fyrir bættri þjónustu við blinda, sjónskerta og daufblinda og þó að ennþá væri langt í land með að þjónustan stæði undir öllum væntingum þá lagði hann áherslu á að félagsmenn stæðu saman í því að halda vörð um það sem áunnist hefði í því sambandi.
Ágústa Eir Gunnarsdóttir, Haukur Sigtryggsson, Ólafur Þór Jónsson og Arnheiður Björnsdóttir tóku til máls og þökkuðu fundarmönnum stuðning til setu í stjórn og varastjórn félagsins. Þá tóku til máls undir þessum sama lið, Þórður Pétursson, Rósa Ragnarsdóttir og Gísli Helgason sem fjölluðu um ýmis mál sem borið hafði á góma á fundinum.
14. FUNDARSLIT
Kristinn Halldór Einarsson þakkaði viðstöddum fyrir góðan fund, félagsmönnum fyrir ötult starf í nefndum félagsins á liðnu ári og starfsmönnum félagsins fyrir gott starf á árinu og fyrir þátt sinn í því að fundurinn gekk vel fyrir sig. Hann sagði að mörg stór og mikilvæg verkefni væru framundan á næstu árum og hvatti félagsmenn til þess að taka virkan þátt í starfi félagsins. Réttindabarátta fatlaðra væri á margan hátt í nýjum farvegi. Vonir stæðu til að eftir tvö ár flyttist málaflokkurinn frá ríki yfir til sveitafélaga og brýnt væri að áherslan í réttindabaráttunni yrði á grunni nýs sáttmála Sameinuðu þjóðanna þar sem baráttan fyrir jöfnuði og mannréttindum í samfélagi manna væri í forgrunni, þar sem áherslan væri fyrst og fremst á stuðning til sjálfstæðis. Hann sagði fundinum formlega slitið klukkan 14.10
Fundargerð ritaði Klara Hilmarsdóttir
