Fundargerð félagsfundar Blindrafélagsins 30. október 2008 um efnahagshrunið á Íslandi
Haldinn fimmtudaginn 30 október 2008
Félagsfundur í Blindrafélaginu
Fundur haldinn í Hamrahlíð 17 fimmtudaginn 30. október 2008.
Fundarefni: Ástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar .
Dagsskrá.
- Fundarsetning, kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Kynning viðstaddra.
- Fundargerð síðasta félagsfundar borin upp til samþykktar.
- Kynning á áhrifum bankakreppunnar á lausafjárstöðu blindrafélagsins.
- Framsaga Benedikt Jóhannesson tryggingarstærðfræðingur.
- Framsaga Stefán Ólafsson prófessor.
- Umræður og fyrirspurnir.
- Önnur mál.
1. Fundarsetning, kosning fundarstjóra og fundarritara.
Kristinn Halldór H. Einarsson formaður Blindrafélagsins setti fundinn kl. 17:00 og bauð fundarmenn velkomna. Hann stakk upp á að Halldór S. Guðbergsson yrði kosinn fundarstjóri og Sigþór U. Hallfreðsson fundarritari og var það samþykkt.
2. Kynning viðstaddra
Fundarmenn kynntu sig eins og venja er á fundum Blindrafélagsins. Fundinn sóttu tæplega 50 félagsmenn.
3. Fundargerð síðasta félagsfundar borin upp til samþykktar.
Fundarstjóri sagði frá að fundargerð síðasta félagsfundar væri ekki tilbúinn og því ekki hægt að leggja hana fyrir til samþykktar. Lagði hann til að fundargerðin yrði kláruð og send út á miðlum félagsins og varð það ákveðið.
Einar Lee (EL) tók til máls og hvatti til þess að það tæki ekki 6-8 mánuði að gera fundargerðir.
4. Kynning á áhrifum bankakreppunnar á lausafjárstöðu Blindrafélagsins.
Ólafur Haraldsson framkvæmdastjóri Blindrafélagsins fór yfir stöðu félagsins í stórum dráttum. Hann lýsti eignastöðu félagsins á inneignarreikningum, í peningasjóðum og hlutabréfum. Fram kom að miðað við stöðu mála þann daginn gæti tap félagsins vegna inneignar í peningasjóðum og öðrum verðabréfasjóðum bankanna orðið um 30 milljónir króna. Það er um það bil ávöxtun síðustu tveggja ára. Auk þess væri hlutafé félagsins í Glitni banka væntanlega tapað. Þrátt fyrir þetta væri peningastaða félagsins og Verkefnasjóðs þess allgóð. Lausafé félagsins var um 177 m.kr. þegar bankakreppan skall á og ef áætlanir ganga eftir, verður hún um 150 m.kr. þegar allir verðbréfasjóðir hafa verið gerðir upp.
Ólafur Þór Jónsson lagði fram tillögu um að umræður og fyrirspurnir yrðu hafðar í lok hverrar framsögu. Tillagan var borinn undir atkvæði og samþykkt.
Umræður og fyrirspurnir. Til máls tóku Einar Lee, Ólafur Þór, Gísli Helgason og Sigtryggur Eyþórsson. Allir voru kváðust þeir hafa átt von á verri tíðindum.
5. Framsaga, Benedikt Jóhannesson tryggingastærðfræðingur.
Benedikt kom víða við í erindi sínu, benti m.a. á að allt er hverfult og dró engan dul á að ástandið er alvarlegt. Viðbrögð fólks, reiði og sárindi væru skiljanleg. Við höldum oft að ástandið sem varir, verði alltaf, hvort sem þar er upp- eða niðursveifla. Við verðum að laga okkur að ástandinu og gæta þess að sigla ekki í strand. Nú er tímabært að endurskoða gildin í lífinu og átta sig á hvað skiptir í raun máli. Við höfum margt með okkur t.d. í atvinnulífinu en ekki síst kraftinn sem býr í þjóðinni sjálfri.
Umræður og fyrirspurnir. Til máls tóku Einar Lee, Einar Þorsteinsson, Ólafur Þór og Sigtryggur Eyþórsson.
6. Framsaga, Stefán Ólafsson prófessor.
Stefán benti á að bankahrunið kom óvænt og mörgum finnst allt vera að hrynja. Við getum gert ráð fyrir að þjóðarframleiðsla og kaupmáttur dragist mikið saman og atvinnuleysi aukist. Margt er líkt með ástandinu nú og milli 1967-70 þegar hrun varð í síldarstofninum. Við vitum að þetta verður erfitt en alls ekki óyfirstíganlegt. Stefán lýsti kreppunni sem varð hjá Finnum upp úr 1990, hvernig þeir tókust á við hana m.a. með því að styrkja almanntryggingakerfið og hvað við getum lært af því. Hann fór einnig yfir almanntryggingakerfið og hækkanir trygginga sem fyrirhugaðar eru um áramótin.
Umræður og fyrirspurnir. Til mál tóku Ólafur Þór Jónsson, Haukur Sigtryggsson og Einar Lee.
Kristinn Halldór Einarsson þakkaði síðan gestum fundarins fyrir góð og fræðandi framsöguerindi og greinargóð svör.
7. Umræður og fyrirspurnir.
Umræður og fyrirspurnir fóru fram í lok hverrar framsögu og því féll þessi liður niður.
-
Önnur mál.
Til máls tóku Kristinn Halldór Einarsson, Einar Lee, Ólafur Þór Jónsson og Halldór Sævar Guðbergsson.
Halldór benti m.a. á að mikilvægt væri að standa vörðu um velferðarkerfið, Kristinn Halldór tók undir það og áréttaði að hlutverk félagsins væri að standa vörð hagsmuni félagsmanna þar með talið velferðarkerfið. Einar Lee óskaði þess að öllum gengi vel í komandi þrengingum. Óli Þór þakkaði fyrir góðan fund og lagði áherslu á að við ættum að nota félagið til að styrkja hvort annað.
Halldór Sævar fundarstóri þakkaði að því loknu fyrir góðan fund og gaf formanni orðið.
Kristinn Halldór Einarsson þakkaði fundarmönnum fyrir góðan fund og sleit fundi klukkan 19:15.
Fundarritari
Sigþór U. Hallfreðsson
Grein
