Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Fara í leit

Útgáfa

Hljóðupptaka aðalfundar Blindrafélagsins, 23. maí 2009

Hljóðskrár

Aðalfundur Blindrafélagsins haldinn 23. maí 2009 að Hamrahlíð 17 kl. 10 árdegis.
Fundarstjórar: Halldór Sævar Guðbergsson og Sigþór Ó Hallfreðsson.
Fundarritari: Klara Hilmarsdóttir.
Ath: Allar hljóðskrár eru á mp3-sniði. Neðst í efnisyfirliti um hverja skrá er gefin upp lengd og stærð.
Heildartími: 3 klst. og 15 mín. (66.8 mb)

01 Kristinn Einarsson formaður félagsins setur fundinn og flytur hugleiðingar um Blindrafélagið á 70 ára afmæi þess og talar um stefnu þess og áherslur í náinni framtíð.
Kosning fundarstjóra, upphafsorð fundarstjóra og kosning fundarritara
11:08 mín.. )3.8 mb)

02 Inntaka nýrra félagsmanna. Klara Hilmarsdóttir ráðgjafi les.
4:51 mín. (1.6 mb)

03 Látinna félagsmanna minnst. Klara Hilmarsdóttir
3:39 mín. (1.1 mb)

04 Fundargerð síðasta aðalfundar borin upp til samþykktar og formaður fylgir skýrslu stjórnar úr hlaði
Umræður um skýrslu stjórnar
19:25 mín. (6.5 mb)

05 Ólafur Viggó Sigurbergsson skýrir ársreikninga Blindrafélagsins og fer yfir þá.
26:32 mín. (9.1 mb)

06 Umræður um ársreikningana.
Til máls tóku: Sigtryggur Eyþórsson, Ólafur Þór Jónsson og Gísli Helgason. Ólafur Haraldsson svarar spurningum.
Reiknigar bornir upp til samþykktar.
Ákveðið árstillag til Blindrafélagsins fyrir næsta starfsár.
18:23 mín. (6.1 mb)

07 Hvatningarstyrkir Blindrafélagsins fyrir árið 2009 veittir. Kristinn H. Einarsson formaður.
3:56 mín. (1.2 mb)

08 Kosningar í aðal og varastjórn og í nefndir. Einnig kjörnir skoðunarmenn reikninga. Frambjóðendur til aðal og varastjórnar kynna sig.
Birt úrslit kosninga.
18:35 mín. (6.2 mb)

09 Aðalfundur ákveður laun til Stjórnarmanna. Frummælandi: Kristinn H. Einarsson.
Umræður: Einar Lee, Ólafur Haraldsson, Ólafur Þór Jónsson, Gísli Helgason, Sigurður A. Sigurjónsson,
Sigtryggur Eyþórsson, Kristinn H. Einarsson og Halldór S. Guðbergsson.
Lagabreytingar: Frummælandi Bergvin Oddsson.
20:56 mín. (7.2 mb)

10 Önnur mál:
Jóna Gísladóttir spyr um kostnað við opið hús fyrir utan laun,
Einar Lee ræðir um könnun meðal almennings og félagsmanna Blindrafélagsins á vegum félagsins,
Þórður Pétursson spyr um Blindravinnustofuna,
Eyþór Þrastarson ræðir um ferðaþjónustu blindra, um endurskoðun kerfisins og hvernig túlka beri tilefni ferða,
Friðgeir Jóhannesson ræðir um meintan galla í greiðslum ferða.
Ólafur Haraldsson svarar Jónu Gísladóttur um kostnað við opið hús, Eyþóri og Friðgeiri um ferðaþjónustu. 
11:34 mín. (3.9 mb)

11 Kristinn Einarsson svarar vegna spurninga um ferðaþjónustu. Þá fjallar hann ýtarlega um tilgang með könnumum á ýmsum viðhorfsmeðal almennings og félagsmanna.
Þá segir hann einnig  frá tveimur spurningum varðandi viðhorf til Blindrafélagsins og styrki til félagsins og víkur að Blindravinnustofunni.
Haukur Sigtryggsson þakkar traust til varastjórnar, og fjallar um afstöðu til fatlaðra um ferðaþjónustu í Hafnarfirði,
Einar Lee ræðir um heimasíðu félagsins, aðgengi og ferðaþjónustu.,
16:28 mín. (5.3 mb)

12 Halldór Sævar Guðbergsson fjallar um viðhorf og kannanir og um þjónustu og þekkingarmiðstöðina og ræðir um viðhorf til fatlaðra á þeim tímum sem nú eru fram undan. Ræðir um hvernig stjórnmálamenn hafi notað hugtök um fatlaða til þess að lýsa ástandinu í kreppunni.
Eyþór Þrastarson fjallar fekar um ferðaþjónustu,
Rósa Ragnarsdóttir þakkar fyrir hvatningarstyrk og ræðir um viðhorf til kvenna í stjórnum og segir frá fundi í nkk
(norrænu kvennanefndinni) sem haldinn var í Danmörku fyrir stuttu.
13:37 mín. (4.6 mb)

13 Ágústa Eir Gunnarsdóttir þakkar traust vegna endurkjörs, fjallar um þjónustu og þekkingarmiðstöð, hvetur fólk til að kynna sér ritgerð Helgu Einarsdóttur, og minnist á lýkingamál stjórnmálamanna um fatlaða í kreppunni,
Haukur Sigtryggsson fer með vísu og fjallar um hugtakið fötlun og hvort fólk skammist sín fyrir sjónskerðingu og blindu,
Ólafur Þór Jónsson fjallar um fundinn, um kynjahlutfall og spyr um hátíðarhöld í tilefni 70 ára afmælis Blindrafélagsins,
Arnheiður Björnsdóttir þakkar stuðning til stjórnar.
11:21 mín. (3.6 mb)

14 Gísli Helgason fjallar um reynslu af sjónskerðingu og hvernig sumt fólk kom fram við illa sjáandi börn og fullorðna,
Ólafur Haraldsson biður stjórnarmenn um myndatöku,
LoKorð fundarstjóra Sigþórs Hallfreðssonar
Fundarslit formanns.
14:10 mín. (4.7 mb)





Þetta vefsvæði byggir á Eplica