8. stjórnarfundur Blindrafélagsins 2009 - 2010, haldinn 18. nóvember 2009
- stjórnarfundur Blindrafélagsins starfsárið 2009 - 2010, haldinn þriðjudaginn 18. nóvember 2009, kl. 09:15, í samkomusal félagsins að Hamrahlíð 17.
Mættir: Kristinn Halldór Einarsson (KHE) formaður, Ágústa Eir Gunnarsdóttir (AEG) varaformaður, Sigþór U Hallfreðsson (SUH) ritari, Arnheiður Björnsdóttir (AB) meðstjórnandi, Kolbrún Sigurjónsdóttir (KS) varamaður, Lilja Sveinsdóttir (LS) varamaður, Ólafur Þór Jónsson (ÓÞJ) varamaður, Haukur Sigtryggsson (HS) varamaður og Ólafur Haraldsson (ÓH) framkvæmdastjóri.
Í símanum: Halldór Sævar Guðbergsson (HSG) gjaldkeri
- Fundarsetning
Formaður setti fundinn kl. 09:15 og bauð stjórnarmenn og gest fundarins, Huld Magnúsdóttur, forstjóra Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blindra, sjónskertra og daufblindra einstaklinga, velkomna til fundarins.
- Drög að reglugerð að úthlutun hjálpartækja
Formaður þakkaði Huld Magnúsdóttur fyrir að koma á fundinn og bað hana að fara yfir reglugerðardrögin sem nú liggja til skoðunar í félagsmálaráðuneytinu.
Huld tók til máls og sagði að drögin hafi að mestu verið samin af starfsmönnum Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvarinnar. Fyrirmynd hennar er reglugerð Tryggingarstofnunar ríkisins um hjálpartæki. Engar athugasemdir hafa ennþá borist um reglugerðardrögin. Hún vakti athygli á því að reglugerðin miðaði við að hjálpartækjum væri aðeins úthlutað til einkanota þeirra sem hjálpartækjanna nytu, þ.e. ekki væri úthlutað til vinnustaða eða skólastofnana. Stjórnarmenn gerðu athugasemd við þetta atriði og töldu það ekki vera skýrt í drögunum. Einnig voru gerðar athugasemdir við nokkrar greinar í drögunum, þ.a.m. 3. grein þar sem fjallað er um rétt til hjálpartækja. Athugasemdir voru gerðar við að tíðni úthlutana væri mismunandi eftir tegundum hjálpartækja og í sumum tilfellum ekki eðlilegt samræmi þar á milli. Einnig kom fram gagnrýni á að fólk sem býr á dvalarheimilum skuli ekki eiga rétt á hjálpartækjum.
HSG fagnaði reglugerðinni sem slíkri og taldi í henni vera ýmsa góða hluti svo sem listann yfir úthlutunartæki. Hann lagði til að í reglugerðinni væri ákvæði um að endurskoðun á henni skuli fara fram ári eftir gildistöku. Hann gagnrýndi einnig tíðni úthlutana á hjálpartækjum og nefndi þar sérstaklega merkjastafi, kíkisgleraugu vs. stækkunargler og punktaletursbækur til afþreyingar.
ÁEG tók undir með HSG varðandi punktaletursbækur til afþreyingar. Vakti hún athygli á því að ekki væri heimilt að fjölfalda bækur frá bókasöfnum á punktaletri. Einnig geði hún athugasemdir við langan frest milli úthlutana (3 ár) á hugbúnaði til stækkunar á myndum og texta (Jaws og fl.).
KHE og SUH telja skilgreiningu á því hverjir eigi rétt á úthlutunum og til hvers, stundum vera loðna.
Huld segir það vera meðvitaða ákvörðun að hafa skilgreiningar víðar fremur en þröngar. Hvað varðar skóla, þá beri þeim skylda til að skaffa börnum hjálpartæki til nota í skólunum.
ÓÞJ tók undir gagnrýni HSG á of löngum tíma milli úthlutana á hvítum stöfum. Huld sagði þetta ákvæði í drögunum byggt á reynslu og töluverðri umhugsun.
KHE lagði til að milli funda verði fjallað um reglugerðina og formlegar athugasemdir gerðar við listann og tíðni úthlutanna.
Huld minnti á að leiðsöguhundar væru inni í reglugerðinni en miðað við núverandi stöðu, væru ekki til peningar fyrir þeim lið. Ekki verður auglýst eftir umsóknum um leiðsöguhunda fyrr en reglugerðin er í höfn og fjárveiting hefur fengist fyrir hundunum.
Því næst var samþykkt að KHE, ÁEG og HSG skipi rýnihóp sem fari yfir reglugerðardrögin og skili umsögn og tillögum til breytinga á næsta stjórnarfundi.
- Dagskrá
Fyrirliggjandi dagskrá fundarins samþykkt. Eftirtaldar beiðnir komu fram um mál til umfjöllunar undir liðnum „Önnur mál“:
HS – Bókanir á samkomusal félagsins
ÓÞJ – Lóð við Hamrahlíð 15
ÓÞJ – Jólahlaðborð
KS – Útgangar úr húsinu (Hamrahlið 17)
4. Fundargerð 7. stjórnarfundar
Samþykkt án breytinga.
5. Bréf
a) Bréf hefur borist frá ÖBÍ þar sem Blindrafélagið er beðið um að tilnefna fulltrúa í hóp til að endurskoða lög ÖBÍ. Samþykkt að tilnefna HSG sem aðalmann og KHE til vara.
b) Bréf hefur borist frá umgmenna hreyfingu norsku blindrasamtakanna þar sem skýrt er frá því að þeir boði til ráðstefnu í Noregi 12. – 14. Feb. 2010 um menntunarmál og atvinnumál blindra og sjónskertra ungmenna og varnir gegn mismunun á þessum sviðum.
Samþykkt að vísa málinu til Ungblind til athugunar.
c) Eftirtaldir aðilar sóttu um félagsaðild í október 2009 og voru samþykktir samhljóða og boðnir velkomnir í félagið:
Helga Friðriksdóttir kt.040753-3549
Miðtúni 33
400 Ísafirði LB
Fanney Jónsdóttir kt.180539-2639
Engihjalla 23
200 Kópavogi LB
Sigrún Árnadóttir kt.171033-2849
Grænamýri 6
170 Seltjarnarnesi SS
Vottorð frá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð liggja fyrir.
6. Úthlutun á leiðsöguhundinum „EXO“
Formaður lagði fram bréf frá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð dags. 2. nóvember s.l. þar sem mælt er með að leiðsöguhundurinn EXO verði endurúthlutað til Svanhildar Sveinsdóttur (sjá. fskj. 1). Þessi niðurstaða er fengin í samráði við norsku hundaþjálfaranna og þann íslenska sem fara hafa yfir málið ásamt ÞÞM.
Samþykkt samhljóða að fylgja leiðsögn ÞÞM og hundaþjálfaranna í þessu máli og endurúthluta Svanhildi Sveinsdóttur hundinum. Drífa Gestsdóttir, hundaþjálfari mun endurþjálfa hundinn þangað til hann verður tilbúinn til afhendingar, en það getur tekið einhverja mánuði.
7. Skýrslur
a) Það gleymdist að senda skýrslu formanns út fyrir fundinn og því fór formaður yfir helstu atriði hennar.
b) Skrifleg skýrsla framkvæmdastjóra var send út fundinn. Engar athugasemdir voru gerðar við efni skýrslunnar.
8. Styrktarmannakerfi og söfnun nýrra styrktarfélaga
Formaður hóf umræðuna og lagði fram skjal með tillögum um lagskipt styrktarmannakerfi (fskj. 2). Þar er gert ráð fyrir fjórskiptu kerfi þar sem almennir félagar greiði einfalt gjald, silfurfélagar tvöfalt gjald, gullfélagar fjórfalt gjald og demantfélagar tólffalt gjald. Einnig eru tillögur um að félagsmenn verði virkjaðir til að afla styrktarfélaga og hugmyndir um umbunarkerfi þeim til handa.
Nokkrar umræður urðu um þessar hugmyndir sem eru byggðar á stefnumótun stjórnar sem samþykkt var nýlega. Þessar hugmyndir eru að verulegu leiti í samræmi við kerfi sem norsku blindrasamtökin nota við styrktarfélagaöflun og fjáraflanir þeim tengdum.
Samþykkt að fá nánari upplýsingar um norska kerfið og senda stjórnarmönnum.
Nokkrar umræður spunnust um fjáraflanir almennt og m.a. kom fram sú skoðun að fyrirtækjasafnanir þurfi að beinast að ákveðnum verkefnum. Einnig kom fram að Blindrafélagið getur núna hrósað happi yfir því hversu lítill hluti fjáraflanna félagsins hafa verið frá fyrirtækjum því sá markaður hefur hrunið í kjölfar falls bankanna á síðasta ári.
Engin samþykkt var gerð um þetta mál enda voru hugmyndirnar eingöngu lagðar fram til kynningar.
- Önnur mál
Eftirtalin mál voru tekin til umræðu:
a) Fundartími – Ákveðið að næsti stjórnarfundur verði haldinn mánudaginn 30/11, kl. 16:30 og þar næsti mánudaginn 14/12, einnig kl. 16:30.
b) Salarbókanir – HS leggur til að einn starfsmaður sjái um að bóka viðburði í salinn. ÓH bendir á að tvíbókun sem kveikti þessa umræðu hafi verið mannleg mistök en ekki bókunarkerfinu sem slíku að kenna. ÓH falið að kanna skipulag á salarbókunum og athuga hvort þörf sé á öðru skipulagi.
c) HS spurði um kostnað við hljóðritun á félagsfundum og Völdum greinum. ÓH svaraði að kostnaður við hljóðritun félagsfunda væri ekki hár, innheimt hafi verið fyrir 2 tíma vegna upptöku á síðasta fundi. Hvað varðar Valdar greinar, þá er í gildi samningur við Hljóðvinnsluna sem kveður á um að greiddir séu 6,5 tímar fyrir alla hljóðversvinnu fyrir hvert tölublað Valdra greina.
d) Síðasti félagsfundur – HS kvaddi sér hljóðs og sagðist harma ummæli og persónulegt skítkast sem ónafngreindir fundarmenn á síðasta félagsfundi höfðu uppi um nær- og fjarstadda einstaklinga.
e) Lóðin að Hamrahlíð 15 – ÓÞJ vill að Reykjavikurborg leggi lóðina að Hamrahlíð 15, sem er auð, undir bílastæði. Samþykkt að ÓH kanni hjá borginni hvernig ráðstafa eigi þessari lóð.
f) Jólahlaðborð – ÓÞJ vill sameina öll jólahlaðborð félagsmanna, starfsmanna, stjórnarmanna og Blindravinnustofunnar og halda í staðinn sameiginlega árshátíð. Engin samstaða var um þessa tillögu og ekkert ákveðið.
g) Útgönguleiðir á 1. hæð Hamrahlíðar 17 – KS telur að neyðarástand geti skapast ef eldur brýst út í húsinu og húsið verði rafmagnslaust, því engin neyðarhurð sé til hliðar við aðalinnganginn. Samþykkt að ÓH og KS fari yfir þetta með Kristmundi Eggertssyni húsasmíðameistara.
Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 12:00
Fundargerð ritaði Ólafur Haraldsson
