17. stjórnarfundur Blindrafélagsins starfsárið 2009 - 2010, haldinn 28. apríl 2010.
17. stjórnarfundur Blindrafélagsins starfsárið 2009 - 2010, haldinn miðvikudaginn. 28. apríl, kl. 12:00 í samkomusal félagsins að Hamrahlíð 17.
Mættir: Kristinn Halldór Einarsson (KHE) formaður, Kolbrún Sigurjónsdóttir (KS) varamaður, Haukur Sigtryggsson (HS) varamaður, Ólafur Þór Jónsson (ÓÞJ) varamaður, Lilja Sveinsdóttir (LS) varamaður og Ólafur Haraldsson (ÓH) framkvæmdastjóri.
Í símanum: Halldór Sævar Guðbergsson (HSG) gjaldkeri
- Fundarsetning
Formaður setti fundinn kl. 12:00 og bauð stjórnarmenn velkomna til fundarins. Gest fundarins, Kristinn Kristjánsson (KK) löggiltur endurskoðandi frá PWC, var boðinn sérstaklega velkominn.
- Dagskrá fundarins
Eini liðurinn á dagskrá fundarins voru ársreikningar félagsins og rekstrareininga þess fyrir árið 2009.
3. Ársreikningar Blindrafélagsins fyrir 2009
Framkvæmdastjóri félagsins tók fyrstur til máls og minnti á að reikningarnir hefðu verið kynntir í stjórn fyrir viku síðan. Þá var lagt til að stofnfé félagsins í BYR sparisjóði yrði fært niður um 75%. Síðan sá fundur var haldinn, væri ríkissjóður búinn að yfirtaka BYR og þar með væri ljóst að stofnféð væri með öllu tapað. Því væri nú lagt til að umrætt stofnfé verði afskrifað að fullu.
Endurskoðandi félagsins tók næstur til máls og taldi það eðlilega ráðstöfun í ljósi nýrra frétta að afskrifa stofnféð að fullu. Hann styddi þá tillögu og teldi hana raunhæfa og í takt við þá viðleitni að sýna varfærið mat á eignum félagsins.
KK skýrði þvínæst undirritun endurskoðenda og hvað í henni felist. Einnig var farið yfir skýrslu stjórnar eins og hún birtist í reikningunum. Þá var farið yfir helstu stærðir í ársreikningnum.
Tap af rekstri félagsins á árinu að meðtöldum fjármagnsliðum var 13,7 m.kr. Þar af var tap vegna afskrifta stofnfjárins í BYR 13,4 m.kr. Án afskriftarinnar hefði reksturinn verið í járnum.
Síðan voru helstu liðir í ársreikningnum skýrðir og spurningum stjórnarmanna svarað. KK taldi að rekstur félagsins væri traustur og í vel viðunandi þegar tillit væri tekið til árferðis og hrunsins í efnahagslífinu. Starfssemi félagsins hefur aukist á árinu sem sést best á því að stöðugildi jukust milli ára úr 11,0 í 12,3.
Eiginfjárstaða félagsins er mjög góð eða um 87% en þá hefur ekki verið tekið tillit til dulinna (vanmetinna) eignaliða, sbr. eign félagsins í Blindravinnustofunni.
Samkvæmt efnahagsreikningi nam eigið fé Blindrafélagsins í árslok 712 m.kr.
Á fundinum kynnti KK árlegt endurskoðunarbréf PWC til stjórnar félagsins og fór yfir umfjöllunarefni þess.
Næst var farið yfir ársreikninga Verkefnasjóðs, Námssjóðs blindra og Minningarsjóðs Margrétar Jónsdóttur.
14,4 m.kr hagnaður var af rekstri Verkefnasjóðs á árinu og nam eigið fé hans í árslok um 50 m.kr. Tekjur sjóðsins á árinu voru 26,3 m.kr og gjöld vegna verkefna 12 m.kr.
700 þús kr. hagnaður var af rekstri Námssjóðs blindra en styrkveitingar námu kr. 625.000. Í árslok nam eigið fé hans 6,1 m.kr.
Hagnaður af rekstri Minningarsjóðs Margrétar Jónsdóttur var um 900 þús kr. og eigið fé í árslok 8,6 m.kr. Engir styrkir voru veittir á árinu.
Að lokinni umræðum um ársreikninga félagsins þakkaði formaður Kristni Kristjánssyni, löggiltum endurskoðanda fyrir komuna á fundinn og greinargóð svör.
Að lokum voru ársreikningar félagsins og tengdra rekstrareininga þess bornir undir atkvæði og samþykktir samhljóða. Framkvæmdastjóra var síðan falið að afla undirritunar stjórnarmanna og annarra tilgreindra aðila á reikningana.
Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 13:30
Fundargerð ritaði Ólafur Haraldsson
