Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Fara í leit

Útgáfa

18. stjórnarfundur Blindrafélagsins starfsárið 2009 - 2010, haldinn 4. maí 2010.

18. stjórnarfundur Blindrafélagsins starfsárið 2009 - 2010, haldinn þriðjud.  4. maí,  kl. 16:30 í samkomusal félagsins að Hamrahlíð 17.

 

Mættir: Kristinn Halldór Einarsson (KHE) formaður, Ágústa Eir Gunnarsdóttir (AEG) varaformaður, Sigþór U Hallfreðsson (SUH) ritari, Arnheiður Björnsdóttir (AB) meðstjórnandi, Kolbrún Sigurjónsdóttir (KS) varamaður,  Ólafur Þór Jónsson (ÓÞJ) varamaður, Lilja Sveinsdóttir (LS) varamaður og Ólafur Haraldsson (ÓH) framkvæmdastjóri.

Í símanum frá Akureyri frá kl. 17:00: Halldór Sævar Guðbergsson (HSG) gjaldkeri.

Haukur Sigtryggsson (HS) varamaður mætti á fundinn um kl. 17:15 undir umræðu um 7. lið.

 

  1. Fundarsetning

Formaður setti fundinn kl. 16:30 og bauð stjórnarmenn velkomna til fundarins.

 

  1. Dagskrá fundarins og önnur mál

Fyrirliggjandi dagskrá fundarins samþykkt. Óskir komu fram um eftirfarandi liði undir „Önnur mál“:

a)    KHE – Ferðaþjónusta í Kópavogi

b)    SUH - Heimasíða Blindravinnustofunnar

 

3.    Samþykktir fundargerða

Afgreiðslu fundargerð 15. stjórnarfundar var frestað á 16. stjórnarfundi. Var hún nú samþykkt með óverulegri breytingu.

Fundargerðir 16. og 17. stjórnarfunda lágu fyrir fundinum og voru þær báðar  samþykktar án athugasemda.

 

4.    Bréf

a)    Tölvupóstur frá framkvæmdastjóra Blindravinnustofunnar þar sem skýrt er frá því að stjórn BVS fari þess á leiti við stjórn Blindrafélagsins um að undirbúningur vegna 70 ára afmælis vinnustofunnar á næsta ári verði unnin sameinginlega af báðum félögunum. Þar er lagt til að skipuð verði undirbúningsnefnd um málið. Samþykkt að B.fél. taki þátt í undirbúningnum en frumkvæði komi frá Blindravinnustofunni.

 

5.    Skýrslur

a)    Formaður lagði fram skriflega skýrslu og fór yfir helstu atriði hennar á fundinum.

Upplýsingabanki á vegum EBU um Sáttmála Sameinuðu Þjóðanna er í bígerð. Skrifa þarf lögfræðilega skýrslu um stöðu mála hér á landi. Áætlaður kostnaður um 150.000 kr. Samþykkt að vinna verkið og fá til þess Helgu Baldvins og Bjarkardóttur.

b)    Framkvæmdastjóra – Skrifleg skýrsla var send út fyrir fundinn. Farið var  yfir helstu atriði hennar og engar athugasemdir voru gerðar.

Einnig upplýsti framkvæmdastjóri að styrkumsókn hafi veri send til ÖBÍ í síðasta mánuði þar sem sótt er um styrk til reksturs, viðhalds fasteignar og smíði nýs talþjóns. Heildarupphæð umsóknar kr. 3.500.000.

 

6.    Kynning á athugasemdum Blindrafélagsins við tillögur nefndar um fullgildingu Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

ÁEG telur að félagið eigi að gefa jákvæða umsögn við tillögurnar. Leggja þurfi áherslu á atriði eins og textun í sjónvarpi og fleiri atriði sem varða sérstaklega blind og sjónskerta.

KHE tekur undir sjónarmið ÁEG.

Lagt til að afgreiðslu málsins verði frestað nú og tekið upp aftur á fyrsta fundi nýrrar stjórnar eftir aðalfund félagsins.

 

7.    Umræður og mat á starfi stjórnarinnar á starfsárinu

Formaður hóf umræðuna og bað aðra stjórnarmenn að fara yfir starfið og önnur atriði sem snúa að stjórnarstörfum.

Allmiklar umræður urðu um þennan lið og tóku flestir stjórnarmenn til máls. Almennt voru menn jákvæðir gagnvart fundarstjórn, stjórnarstörfum og verkefnum stjórnarinnar. Þó var bent á nokkur atriði sem betur mætti fara. Að loknum umræðunum þakkaði formaður stjórnarmönnum fyrir góðar umræður. Hann væri sáttur og taldi umræður á stjórnarfundum almennt vera góða. (Nánar um umræðurnar á fylgiskjali 1).

 

  1. Önnur mál

a)    SUH – Heimasíða BVS – Rætt var um hvort til álita kæmi að samnýta vefverslun félagsins. Einnig varpaði SUH fram þeirri hugmynd hvort til greina kæmi að starfsmaður BVS yrði sameiginlegur vefstjóri BVS og Blindrafélagsins. Engar ákvarðanir voru teknar um þessi mál.

b)    KHE – Ferðaþjónustan í Kópavogi.

KHE lagði fram hugmynd um auglýsingatexta til að birta í auglýsingu frá Blindrafélaginu í dagblöðum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Samþykkt var að auglýsa og birta umræddan texta. (sjá fskj. 2)

c)    HSG – Framkvæmd kosninga á aðalfundi.

Ekki verða sömu einstaklingar í framboði til formanns og til stjórnar félagsins. Það opnar fyrir þann möguleika að hægt verði að kjósa samtímis til formanns og aðalstjórnar. Samþykkt að beina því til skrifstofu að þetta verði kannað og framkvæmt ef engir meinbugir finnast.

d)    HSG – Tölvumiðstöð fatlaðra – HSG taldi að tölvukennslu blindra og sjónskertra væri ábótavant og tilkoma tæknimanns á ÞÞM hefði ekki leyst kennsluvandann. Margir félagsmenn þyrftu persónulega kennslu. HSG lagði til að gengið verði til samninga við Tölvumiðstöð fatlaðra um framboð á námskeiðum fyrir blinda og sjónskerta og Blindrafélagið myndi niðurgreiða námskeiðargjöldin fyrir félagsmenn sína um 50%. Þessi niðurgreiðsla mætti í heild nema allt að 500 þús kr. á næsta ári. Eftir nokkra umræðu var þetta samþykkt og að HSG kæmi þessu á framfæri við stjórn TF þar sem hann á sæti.

e)    Samþykkt var að stjórnarmenn og framkvæmdastjóri fari saman út að borða, ásamt mökum, fimmtudaginn 13. maí.

 

Að lokum þakkaði formaður stjórnarmönnum fyrir gott samstarf á starfsárinu og þeim sem nú ganga úr stjórn félagsins fyrir góð störf í þágu félagsins á liðnum árum.

 

Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 18:50

 

Fundargerð ritaði Ólafur Haraldsson





Þetta vefsvæði byggir á Eplica