Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Fara í leit

Útgáfa

Blindrafélagið 40 ára.

Hljóðritanir frá 40 ára afmæli félagsins sem haldið var hátíðlegt sunnudaginn 19. ágúst 1979

00 Kynning
1:34 mín. (1.0 mb)

01 Arnþór Helgason ræðir við Rósu Guðmundsdóttur varaformann Blindrafélagsins sem segir m. a. frá stofnun félagsins og rekur í stórum dráttum sögu þess. Þá fjallar hún um framtíðarmarkmið sem stefna beri að.
9:54 mín. (6.9 mb)

02 Frá hátíðarhöldum við Hamrahlíð 17
Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur undir stjórn Hans Ploters Franssonar. Arnþór lsegir frá hátíðarhöldunum en hann var kynnir á afmælishátíðinni.
Tengingin við lúðrasveit Hafnarfjarðar var sú að verkstjórinn á Blindravinnustofunni Þórhallur Stefánsson trommuleikari lék með lúðrasveitinni.
8:26 mín. (5.9 mb)

03 Ávarp Halldórs Rafnar formanns Blindrafélagsins.
Þar víkur hann að atvinnumálum og aukinni menntun blindra og sjónskertra.
10:29 mín. (7.5 mb)

04 Ávarp Egils Skúla Ingibergssonar borgarstjóra.
10:27 mín. (7.3 mb)

05 Karlakór Reykjavíkur syngur fimm lög undir stjórn Páls Pamfichler Pálssonar.
10:29 mín. (7.1 mb)

06 Frá afmælisfagnaði Blindrafélagsins sem haldinn var þá um kvöldið. Veislustjóri er Jón Gunnar Arndal sem kynnir.
Ingveldur Hjaltested syngur eitt lag við undirleik Jónínu Gísladóttur píanóleikara.
3:57 mín. (2.7 mb)

07 Þórhallur Stefánsson les upp skeyti og kveðjur sem bárust Blindrafélaginu.
Þá segja þeir Þórhallur og Jón gunnar frá nokkrum gjöfum sem bárust félaginu.
04:04 mín. (2.8 mb)

08 Ræða Halldórs Rafnar.
Þar segir hann frá því m. a. að stjórn félagsins hafi ákvveðið að láta rita sögu blindra á Íslandi en stórgjöf Ólafs Pálssonar og Steinunnar Ögmundsdóttur foreldra Helgu Ólafsdóttur sem varð forstöðumaður Blindrabókasafnsins varð til þess að hægt var að ráðast í það verk.
1:50 mín. (1.2 mb)

09 Björg Einarsdóttir ritari félagsins og rithöfundur flytur ræðu.
Björg var náin vinkona hennar Betu, Elísabetar Kristinsdóttur eiginkonu Andrésar Gestssonar.
8:42 mín. (6.1 mb)

10 Leirburður í léttum dúr með alvarlegum undirtón eftir Rósu Guðmundsdóttur. Rósa flytur. Karl Esrason leikur með á gítar.
Þarna heyrist að Rósa les braginn sem hún skrifaði upp á blindraletri. Rósa var hrókur alls fagnaðar þar sem hún lét til sín taka.
Á gamansaman hátt syngur hún um stofnun Blindrafélagsins og upphaf Blindravinnustofunnar. Rósa var ein stofnenda félagsins.
6:07 mín. (4.3 mb)

11 Úr fréttaauka Ríkisútvarpsins í umsjón Stefáns Jóns Hafstein.
Þar ræðir hann við Halldór Rafnar. Einnig er rabbað við fólk af Blindravinnustofunni.
Sigrún Karlsdóttir segir frá burstagerð. Hún vann við að draga í bursta en sú aðstaða var þar sem fundarsalur Blindrafélagsins er.
Þá heyrist í Guðmundi Jóhannessyni sem vann einnig við burstagerð en hann var einn af stofnfélögunum.
Hann segir frá ýmsum störfum sínum hjá Blindrafélaginu og Blindravinnustofunni.
Einar Guðgeirsson segir frá vélavinnu við burstagerð.
Elísabet Þórðardóttir sem alltaf var kölluð Elsa lýsir vinnu sinni á Blindravinnustofunni. Í bakgrunni heyrist í vélunum.
Þá segir Halldór Rafnar frá margs konar starfsemi á vegum blindra og sjónskertra einstaklinga sem var í Hamrahlíð 17.
Að lokum fjallar hann um framtíðaráform.
6:10 mín. (4.3 mb)

12 Hljóðritun frá því þegar Benedikt Karvel Benonísson fyrsti formaður Blindrafélagsinsflytur ávarp þegar hann tók fyrstu skóflustunguna að húsi Blindrafélagsins 22. október 1957.
Þá var húsið nr. 19 við Hamrahlíð.
1:39 mín. (1.1 mb)

13 Nýárskveðja 1965 til Blindrafélagsins sem Maríus Pálsson flytur. Hljóðritunin er líklega frá 1965. Maríus vann við burstagerð um árabil á Blindravinnustofunni.
0:57 mín. (0.6 mb)

14 Afkynning.
1:28 mín. (1.0 mb)

 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica