Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Fara í leit

Verkefni

Active verkefnið

ACTIVE verkefnið er þriggja ára samstarfsverkefni um menntun og atvinnuþátttöku blindra og sjónskertra einstaklinga með viðbótarfatlanir (MDVI). Samstarfið hófst í október 2006 og er styrkt af Framkvæmdastjórn ESB, Sókrates/Grundtvig 2

Þátttakendur.

Þátttakendur í ACTIVE samstarfinu eru einstaklingar með MDVI, foreldrar og fagfólk sem kemur að kennslu og endurhæfingu einstaklinga með MDVI frá níu löndum. Fulltrúar landanna koma frá ellefu skólum og þekkingarmiðstöðvum; Danmörku, Finnlandi, Írlandi, Íslandi , Ítalíu, Spáni,Svíþjóð – Ekeskolan og Tullängsskolan, Tékklandi og Þýskalandi, SWW og SFZ.

Markmið

Markmið verkefnisins er að þróa leiðir til að brúa bilið milli framhaldsskóla og atvinnulífs og atvinnulífs og símenntunar (life long learning) og auka möguleika einstaklinga með MDVI á fjölbreyttu náms- og starfsvali. 

Atvinnuþátttaka einstaklinga með MDVI hefur meðal annars mótast af atvinnuástandi í löndunum og stöðu einstaklinganna í samfélaginu. Reynslan sýnir að þrátt fyrir markmið um aukin tækifæri til þátttöku í samfélaginu starfa flestir einstaklingar með MDVI á vernduðum vinnustöðum m.a. við körfu- og burstagerð og eiga litla möguleika á náms- og starfsvali.

Styrkleiki

Einn helsti styrkleiki ACTIVE verkefnisins felst í fjölbreyttum bakgrunni þátttakenda sem byggir meðal annars á ólíkri menningu og þjóðfélagsaðstæðum. Hlutfall atvinnuleysis í löndunum sem er frá 2 – 20% hefur t.d. mikil áhrif á atvinnumöguleika einstaklinga með MDVI. Viðhorf í samfélaginu til virkrar samfélagsþátttöku allra takast á við hugmyndir um atvinnuþátttöku annars vegar og þörf einstaklinga fyrir þjónustu og umönnun hins vegar. Segja má að stór hluti fyrsta árs samstarfsins hafi farið í að kynnast og skilja ólík sjónarmið.

Á öðru starfsári er áhersla lögð á nemendaskipti. Í október fóru þrír íslenskir nemendur og kennarar til Ítalíu í fimm daga og von er á nemendum og kennurum frá Ítalíu í janúar.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica